Ég er sérstakur sendiboði Guðs 15. janúar 2012 16:45 Smutty hefur alla tíð haft mikinn áhuga á húðflúri og var kominn með slíkar „ermar“ á báða handleggi árið 1979. Á vegg á heimili hans hangir meðal annars mynd af David Bowie, einum þeirra nafntoguðu sem Smutty hefur kynnst persónulega á ferlinum. fréttablaðið/gva
Kontrabassaleikarinn og útvarpsmaðurinn Smutty Smiff var virkur í endurreisn rokkabillítónlistarinnar í lok áttunda áratugarins. Hann hefur nú búið á Íslandi í fimm ár og berst fyrir uppgangi rokkabillísins hér á landi. „Þeir moka snjónum fyrir innkeyrsluna hjá mér svo ég kemst ekki með bílinn minn út. Svo frýs snjórinn, ég moka hann en svo snjóar bara meira. Þetta er ótrúlegt. Svona mikinn snjó hef ég reyndar séð áður í Noregi en ekki hér á Íslandi í þessi fimm ár sem ég hef búið hér. Konan mín man eftir svona snjóþunga þegar hún var bjó í Breiðholtinu sem barn, en þetta er alveg rosalegt,“ segir Smutty Smiff, rokkabillímaður, kontrabassaleikari og útvarpsmaður svo fátt eitt sé nefnt. Smutty og ný rokkabillísveit hans, Smutty‘s 302, kemur fram á Ellefunni um helgina ásamt gítarsnillingnum Boz Boorer, nánasta samstarfsmanni söngvarans Morrissey og stofnmeðlimi Polecats, hljómsveitarinnar sem átti stóran þátt í endurreisn rokkabillí-tónlistarinnar í Bretlandi og Bandaríkjunum á síðari hluta áttunda áratugarins. „Þegar fólk hugsar um endurlífgun rokkabillísins leiðir það ósjálfrátt hugann að Brian Setzer, forsprakka Stray Cats, en Boz Boorer getur allt sem Brian Setzer getur. Þeir eru báðir klassískt menntaðir hljóðfæraleikarar og báðir miklir snillingar,“ segir Smutty, sem var skírður Steven Dennis Smith. „Boz er góður vinur minn. Hann hefur komið til Íslands áður með Morrissey en gafst ekki færi til að sjá landið almennilega, svo hann hringdi í mig og spurði hvort hann mætti ekki koma í heimsókn. Ég spurði á móti hvort hann væri ekki til í að halda tónleika með mér og nýju hljómsveitinni minni, þar sem við myndum spila undir hjá honum, og hann var til í það. Við tökum líka okkar eigin lög og þetta verða góðir tónleikar. Ég er mjög spenntur.“ Rokkabillíið blómstar í EvrópuEins og áður sagði fluttist Smutty til Íslands fimm árum eftir að hann kynntist íslenskri eiginkonu sinni í Camden í Norður-London, en sjálfur fæddist hann og ólst upp í austurhluta borgarinnar. Þau búa nú í austurborg Reykjavíkur ásamt ungum syni sínum. „Fyrst fannst mér óþægilegt að þekkja engan en svo fór ég að spjalla við fólk eins og Daníel Ágúst og Krumma úr hljómsveitinni Esju, sem ég fór svo að spila með, og með tímanum hef ég kynnst fullt af frábæru fólki. Hér stofnaði ég rokkabillísveitina 59‘ers og við gáfum út plötu, en þegar söngvarinn og trommarinn fóru í skóla stofnaði ég nýju hljómsveitina, Smutty‘s 302, sem spilar með Boz Boorer á Ellefunni,“ segir Smutty, en með honum í sveitinni eru þeir Pétur Hallgrímsson gítarleikari og trommuleikarinn Erik Qvick. Sveitin heldur í hljóðver í næstu viku til að taka upp sína fyrstu plötu sem kemur út hér á landi síðar á árinu, en vonir Smutty standa einnig til þess að ná árangri víðar í Evrópu. „Síðustu ár hef ég verið reyna að sparka einhvers konar rokkabillí-senu í gang hér á Íslandi, með öllu því sem henni fylgir eins og tónlistinni, klippingunni sem ég hef sérhæft mig í, sérstökum klæðnaði og hárfeiti sem ég framleiði sjálfur, og það hefur svo sem gengið ágætlega. En samt er svolítið dapurlegt að áhuginn skuli ekki vera meiri hér á landi því rokkabillí-menningin blómstrar um alla Evrópu og ekki síst í Skandinavíu. Þar tengist rokkabillíið gjarnan alls kyns bílasýningum, húðflúrs-ráðstefnum og fleiru. Víða á Norðurlöndunum er áhugi á að gefa plötuna okkar út og í Finnlandi eru fjölmargar verslanir sem eru eingöngu helgaðar rokkabillí, en í rauninni hugsa ég að allir rokkabillí-aðdáendur Íslands gætu komist fyrir inni á Ellefunni. En Það er mitt að breyta því og fræða fjöldann. Ég er sérstakur sendiboði Guðs, eins og Blues Brothers,“ segir Smutty og skellir upp úr, en samhliða tónleikahaldi og öðru er hann einnig umsjónarmaður útvarpsþáttarins Glymskrattinn á X-inu 9,77, þar sem hann breiðir út fagnaðarerindið. Í miðjunni á pönkbylgjunniSjálfur lék Smutty með hljómsveitinni Rockats sem var áberandi á rokkabillí-endurreisnartímabilinu, en rokkabillíð fléttaðist að nokkru leyti saman við pönkbylgjuna beggja vegna Atlantsála. Þegar bandaríska pönkrokksveitin Johnny Thunders and The Heartbreakers kom til Englands árið 1976 til að taka þátt í hinni alræmdu Anarchy in The UK-tónleikaferð árið 1976 ásamt Sex Pistols, The Clash og fleirum, heillaðist umboðsmaður The Heartbreakes, Leee Black Childers, af hinum unga Smutty og tók hann með sér til New York þar sem við tóku hin ýmsu störf í skemmtanaiðnaðinum næstu árin. „Ég var í miðjunni á pönk-ævintýrinu í London árið 1976,“ segir Smutty. „Þetta var frábær tími. Joe Strummer úr Clash sá okkur á tónleikum þegar við gátum varla spilað á hljóðfærin okkar og ég kynntist öllu þessu fólki: The Ramones, Patti Smith, Blondie, Johnny Rotten, Sid Vicious og mörgum fleirum. Þetta voru allt góðir vinir mínir og ég heilsa upp á þau sem eru enn á lífi þegar ég hitti þau. Þótt þetta fólk sé stórstjörnur og frægt út um allan heim, þá gleymir það því ekki að ég þekkti það þegar þau áttu ekki neitt. Það man að við lánuðum hvert öðru magnara og mjólk í kaffið áður en það keypti sér höll í Beverly Hills,“ segir Smutty, sem var vinsæl ljósmyndafyrirsæta í Bandaríkjunum meðan á ríflega tíu ára langri dvöl hans stóð. „Andy Warhol og Robert Mapplethorpe voru góðir vinir mínir og ljósmyndarar eltu mig dálítið á röndum því ég þótti sætur rokkabillístrákur með fullt af húðflúrum.“ Með sjónvarpsþátt í bígerðSmutty hefur nýlokið við gerð prufuþáttar að sjónvarpsseríu sem hann vonast til að koma að vestan hafs innan tíðar, en í henni ferðast Smutty um Bandaríkin í leit að því landi sem hann eitt sinn þekkti en virðist hverfandi. „Mig langar til að finna fortíðina og færa hana inn í nútímann. Að komast að því hvar er hægt að fá bestu kirsuberjabökuna, bestu vöfflurnar, bestu kokteilana, bílabíóið og svo framvegis,“ útskýrir Smutty. Hann segist kunna vel við sig á Íslandi þrátt fyrir harða vetur, enda sé þetta besta land í heimi til að ala upp börn. Þó varð hann fyrir miklum vonbrigðum í síðustu viku þegar brotist var inn á heimili hans. „Ég fór með son minn á leikskólann og þegar ég kom aftur var búið að brjóta upp hurðina. Ég velti fyrir mér hverjir þora eiginlega að gera svona. Þeir tóku bara tölvuna mína en ekki kontrabassann, tónlistargræjurnar, vegabréfið og slíkt, svo þetta hafa ekki verið atvinnukrimmar. Líklega einhverjir krakkaræflar að leita sér að fé til að kaupa spítt. Ég hef bara eitt að segja við þá sem brutust inn hjá mér: vonandi finnur löggan ykkur áður en ég og vinir mínir gera það!“
Mest lesið Hélt við konu besta vinar síns Lífið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Lífið Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Lífið samstarf Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Fleiri fréttir Hélt við konu besta vinar síns Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Geðbrigði ríður á vaðið í tónleikaröð á Dillon Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Morten Harket greinist með Parkinson Heillandi heimili Sigríðar hjá Birtingi í hjarta Hafnarfjarðar Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Aron segist hættur í ClubDub Ragga nagli í hlutverk fjallkonu í Danmörku Dregur til baka hluta ásakana á hendur Baldoni Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Módernískur retró-stíll í hjarta miðborgarinnar Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Er með gervigreindarþjálfara Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Bergþór Másson selur slotið á ný Sjá meira
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning