Ebert ekki hrifinn af Contraband 13. janúar 2012 09:45 Ekki hrifinn Rogert Ebert, einn frægasti kvikmyndagagnrýnandi Bandaríkjanna, er ekki hrifinn af Contraband eftir Baltasar Kormák. Myndin fær ágætis dóma í bandarískum miðlum en hún skartar Mark Wahlberg og Kate Beckinsale í aðalhlutverkum.
Tveir af virtustu gagnrýnendum Bandaríkjanna eru ekki sammála um ágæti Contraband, fyrstu Hollywood-kvikmyndar Baltasars Kormáks. Myndin verður frumsýnd í dag í Bandaríkjunum í 3.300 kvikmyndasölum en hún er dýrasta kvikmynd íslensks leikstjóra, kostaði tæplega 41 milljón dollara í framleiðslu. Myndin verður frumsýnd hér á landi í næstu viku. Owen Gleiberman hjá Entertainment Weekly gefur Contraband fína umsögn á vefsíðu blaðsins. Hann setur myndina í svokallaðan B-flokk, segir hana halda áhorfendanum við efnið og í janúar sé það virðingarvert. Hann segir að þótt söguþráðurinn sé þvældur haldi myndin sjó. Robert Ebert hjá Chicago Sun-Times er hins vegar ekki á sama máli. Hann gefur myndinni einungis tvær stjörnur, gagnrýnir söguþráðinn og handritið harðlega og lýkur dómi sínum á því að segjast hafa verið meira spenntur yfir bröttum rúllustiga kvikmyndahússins en myndinni sjálfri. Bæði Hollywood Reporter og Variety eru hins vegar jákvæð í garð Contraband. Fyrrnefnda blaðið telur myndina nægjanlega góða til að geta skilað góðu búi til Universal og Variety er á sama máli, það telur hins vegar að vinsældirnar eigi eftir að verða töluverðar utan Ameríku. Kvikmyndavefirnir rottentomatoes.com og metacritic.com, sem taka saman gagnrýni af vefnum, höfðu gefið myndinni einkunn í gær. Contraband fékk 50 af hundraði á rottentomatoes en 53 af hundraði hjá metacritic. - fgg
Mest lesið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Fleiri fréttir Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Sjá meira