Skráir sig í fjarnám til að syngja með Björk 10. janúar 2012 08:30 Fyrir Jónu G. Kolbrúnardóttur (t.v.) var aldrei spurning um annað en að skrá sig í fjarnám til að fara í tónleikaferðalag með Björk í febrúar. Hér er hún með Guðrúnu Matthildi Sigurbergsdóttur. „
Þetta verður í fyrsta sinn sem ég kem til New York svo ég er mjög spennt,“ segir Jóna G. Kolbrúnardóttir, ein af kórstúlkunum í Graduale Nobili en þær ferðast með Björk Guðmundsdóttur til New York í lok mánaðarins. Eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku er Björk að fara með Biophiliu-tónleika sína til New York og eru tíu tónleikar fyrirhugaðir þar í borg í febrúar. Tónleikarnir fengu góða gagnrýni hér á landi í haust en stúlkurnar í kórnum eru þar í lykilhlutverki. „Við verðum í New York í fjórar vikur og búum á íbúðahóteli í Brooklyn-hverfinu,“ segir Jóna. Jóna hefði átt að útskrifast frá Menntaskólanum við Hamrahlíð í vor en þurfti að skrá sig í fjarnám þessa önnina vegna ferðalaganna. „Það var aldrei spurning að fara í fjarnám enda er þetta frábært tækifæri sem maður verður að stökkva á. Ég átti líka bara einn áfanga eftir og skráði mig í fjarnám við Fjölbraut í Ármúla, þar sem það er ekki fjarnám í MH,“ segir Jóna sem ætlar sér að ná að útskrifast í vor þrátt fyrir ævintýrin fram undan. Tónleikarnir verða haldnir á tveimur stöðum í New York, New York Hall of Science og Roseland Ballroom, en Jóna býst við að þær fái nú tækifæri til að skoða sig um í borginni á milli tónleika. „Við erum nokkrar sem ætlum að skoða söngskóla fyrir áframhaldandi söngnám og sjá hvort við finnum ekki góða söngkennara úti,“ segir Jóna sem býst alveg eins við því að þær fari einnig með Björk á flakk í sumar þar sem hún treður meðal annars upp á Hróarskelduhátíðinni. „Ég býst alveg við því en við einbeitum okkur alltaf að einni ferð í einu og núna er það New York.“ -áp
Mest lesið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Fleiri fréttir Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Sjá meira