Stóri dagurinn hjá Balta á fimmtudag 9. janúar 2012 13:00
Kvikmyndin Contraband verður frumsýnd á fimmtudaginn í Bandaríkjunum en hún er endurgerð hinnar rómuðu íslensku kvikmyndar, Reykjavik-Rotterdam eftir Óskar Jónasson. Myndin skartar Mark Wahlberg og Kate Beckinsale í aðalhlutverkum en Baltasar Kormákur situr í leikstjórastólnum. Hann lék hins vegar aðalhlutverkið í íslensku útgáfunni sem fékk feykilega góða dóma og mikla aðsókn. Wahlberg hefur verið duglegur að hrósa íslensku útgáfunni í viðtölum vegna myndarinnar. „Mér fannst íslenska útgáfan virkilega svöl. Maður horfir oft á erlendar myndir og hugsar með sjálfum sér að maður gæti endurgert hana í Bandaríkjunum. En það er yfirleitt ekki svo. Reykjavik-Rotterdam var hins vegar fersk og öðruvísi og okkur fannst hún ganga upp. Þannig að við settumst niður með Baltasar, réðum frábæran handritshöfund og í kjölfarið fór boltinn að rúlla." Samkvæmt vef imdb.com er kostnaður við gerð myndarinnar um fjörtíu milljónir dollara eða tæpir fimm milljarðar íslenskra króna. Myndin verður frumsýnd hér á landi þann 20.janúar. - fgg
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Fleiri fréttir Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Sjá meira