Gítarleikari Morrissey með Smutty Smiff á Ellefunni 8. janúar 2012 08:00 Boz Boorer á tónleikum með söngvaranum Morrissey. Boorer kemur til landsins í næstu viku og spilar á Ellefunni með hljómsveitinni Smutty‘s 302, sem er leidd af sjálfum Smutty Smiff.
Gítarleikarinn Boz Boorer er einn nánasti samstarfsmaður söngvaransMorrissey. Hann er á leiðinni til landsins í næstu viku og kemur fram ásamt hljómsveit Smutty Smiff. „Boz er hljómsveitarstjóri Morrissey." segir rokkabillífrumkvöðullinn og útvarpsmaðurinn Smutty Smiff. Gítarleikarinn Boz Boorer er væntanlegur til landsins í næstu viku og kemur fram ásamt hljómsveitinni Smutty's 302 á Ellefunni á laugardaginn. Boorer þessi er helsti meðhöfundur tónlistarmannsins Morrissey, söngvara hinnar sálugu The Smiths, ásamt gítarleikaranum Alain Whyte. Morrissey og Boz Boorer hófu samstarf skömmu eftir að The Smiths lagði upp laupana eftir stuttan en ótrúlega farsælan feril. Hann er meðhöfundur Morrissey í gömlum slögurum á borð við Now My Heart Is Full, Spring-Heeled Jim og The More You Ignore Me, the Closer I Get. Hann hefur fylgt Morrissey í gegnum tíðina og á meðal nýrri laga sem félagarnir hafa samið saman eru The World is Full of Crashing Bores, I'm Throwing Myself Around Paris og That's How People Grow Up. Smutty Smiff kynntist Boorer áður en hann hóf að vinna með Morrissey. „Hann er vinur minn," segir Smiff. „Í rokkabillíbyltingunni á níunda áratugnum voru aðalhljómsveitirnar The Rockats, The Polecats og The Stray Cats. Hann er stofnmeðlimur The Polecats." Smiff var sjálfur í The Rockats á þessum tíma. „Ég reyndi að sjálfsögðu líka að fá Morrissey," segir Smiff og hlær. „Boz ætlar að spila í Reykjavík með nýju hljómsveitinni minni. Við ætlum að spila lög eftir The Polecats, ég býst ekki við að við spilum Morrissey-lög þar sem hann verður ekki á svæðinu. Boz er hrifinn af hljómsveitinni og sagðist vilja koma í heimsókn, skoða landið og spila á tónleikum. Svo daginn eftir ætla ég að fara með hann í Bláa lónið og sýna honum landið." Tónleikarnir verða þeir fyrstu sem Smutty's 302 spilar á. Hljómsveitina stofnaði Smutty Smiff nýlega ásamt Pétri Hallgrímssyni gítarleikara og trommuleikaranum Erik Qvick. Saman eru þeir búnir að semja tíu lög sem verða tekin upp í næstu viku. „Þetta er allt að gerast mjög hratt," segir Smiff. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira