Inga Lind gerir þáttaröð um offitu 6. janúar 2012 14:00 Inga Lind Karlsdóttir er nú á fullu að undirbúa heimildarþáttaröð um offitu á Íslandi.
Inga Lind Karlsdóttir, fyrrum sjónvarpskona, er nú á fullu að viða að sér efni um offitu Íslendinga. Hún hefur stofnað fyrirtækið ilk ehf. í kringum framleiðslu á heimildarþáttaröð sem hún hyggst gera um þetta vandamál en það virðist sífellt verða stærra og umfangsmeira hér á landi. Inga Lind segist í samtali við Fréttablaðið vera komin með fullt af efni og að verkefninu miði vel áfram. „Ég mun bara halda þeirri vinnu áfram," segir hún. Eins og Fréttablaðið greindi frá í apríl á síðasta ári hafði Inga Lind í hyggju að gera heimildarmynd um of feit börn en þá höfðu nýlegar rannsóknir sýnt fram á að fimmtungur barna á aldrinum sjö til níu ára væri of þungur. „En síðan óx þetta bara og þróaðist út í að verða að heimildarþáttaröð um offitu almennt. Ég mun því ekki eingöngu einblína á börnin heldur allt umhverfið." Inga Lind hefur verið áberandi í opinberri umræðu eftir að hún hætti í sjónvarpi. Hún hlaut meðal annars kosningu til stjórnlagaþingsins en kaus að þiggja ekki sætið eftir að Hæstiréttur úrskurðaði kosningu þess ólögmæta. Hún hefur jafnframt setið í stjórn Hjallastefnunnar á Íslandi. Í samtali við Fréttablaðið í apríl sagði Inga að ekkert eitt hefði orðið til þess að hún ákvað að athuga jarðveginn fyrir þessari heimildarmynd. „Þetta er bara eitt vandamálið í þjóðfélaginu þar sem við getum gert betur og vonandi breytt einhverju." -fgg
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Lífið samstarf Fleiri fréttir Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Sjá meira