Leikur óvænt í Vesalingunum 5. janúar 2012 16:00 Laddi snýr aftur í Þjóðleikhúsið eftir 22 ára fjarveru. fréttablaðið/anton „
Þetta leggst vel í mig. Það er gaman að vera kominn þarna aftur,“ segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi. Hann hefur tekið við hlutverki kráareigandans Thénardiers í söngleiknum Vesalingarnir sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu í mars. 22 ár eru liðin síðan Laddi steig síðast á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu, eða þegar hann lék Fagin í söngleiknum Oliver!. Hringt var í Ladda rétt fyrir áramót og hann beðinn um að taka að sér hlutverkið eftir að Örn Árnason heltist úr lestinni vegna anna með Spaugstofunni. „Það var eiginlega tekin ákvörðun á gamlársdag. Þetta gerðist svo snöggt að ég hafði ekki tíma til að segja nei.“ Æfingar fyrir Vesalingana eru nýhafnar og segist Laddi hafa verið svolítið nervus fyrstu dagana en allt eigi eftir að fara vel. Aðspurður segist hann vera í góðu söngformi, enda stóð hann sig með prýði í áramótaþætti Hljómskálans í Sjónvarpinu. „Það er búið að hrósa mér fyrir það, bæði fyrir Snjókorn falla og Búkollu, þannig að ég hlýt að vera í ágætisformi,“ segir hann hógvær. „Maður er svo sem ekkert sísyngjandi en ég hlýt að komast í gott form með því að syngja á hverjum degi.“ Með aðalhlutverkið í Vesalingunum fer Þór Breiðfjörð sem hefur sungið sama hlutverk á West End í London. Nokkrir leikarar koma fram í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu í söngleiknum, eða þau Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Bjarni Snæbjörnsson, Jana María Guðmundsdóttir og Orri Huginn Ágústsson.-fb
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Fleiri fréttir Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Sjá meira