Lífið

Guðjón kvaddi með stæl á Players

Guðjón Baldvinsson.
Guðjón Baldvinsson. Mynd/Stefán
Fjölmennt var á skemmtistaðnum Players í Kópavogi síðastliðið föstudagskvöld er knattspyrnukappinn Guðjón Baldvinsson hélt kveðjupartý ásamt unnustu sinni, Ingu Hrönn Ólafsdóttur.

Eins og fótboltaáhugamenn vita heldur Guðjón út í atvinnumennskuna á næstu dögum en hann skrifaði undir samning við sænska fyrstu deildar liðið Halmstad. Fyrrum félagar hans úr KR, Hannes Þór Halldórsson, Baldur Sigurðsson og Grétar Sigfinnur Sigurðsson, mættu til að kveðja kappann sem og aðrir vinir parsins.

Einnig mátti sjá Egil „Gillzenegger" Einarsson leika á als oddi í kveðjupartýinu sem þótti einkar vel heppnað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.