Íslensk tónlistarveisla 2012 4. janúar 2012 15:00 Hljómsveitin Sigur Rós gefur líklega út nýja plötu árið 2012.
Íslenskir tónlistarmenn ætla ekki að sitja auðum höndum árið 2012. Von er á nýju efni frá Sigur Rós, Hjaltalín, Friðriki Dór, Skálmöld og fleiri vinsælum flytjendum. Þrátt fyrir að árið 2012 sé rétt að hefjast hafa línur verið lagðar fyrir fjölda nýrra hljómplatna á árinu. Síðasta tónlistarár var mjög gott en miðað við þær plötur sem eru núna í pípunum verður þetta ár engu síðra. Sigur Rós hefur verið í hljóðveri að undanförnu og miklar líkur eru á að ný plata sveitarinnar líti dagsins ljós á árinu. Sú síðasta, Með suð í eyrum við spilum endalaust, kom út fyrir tæpum fjórum árum og bíða því margir óþreyjufullir eftir nýju efni frá Sigur Rós. Ólöf Arnalds gefur út sína fyrstu plötu alfarið á ensku, Sudden Elevation, í vor, og rokkararnir í Mínus senda frá sér sína fimmtu plötu í byrjun ársins, fimm árum eftir að The Great Northern Whalekill leit dagsins ljós. Aðdáendur þeirra mega búast við sama harðkjarnarokkinu nema með nýjum blæ.Skálmöld.Víkingarokkararnir í Skálmöld ætla að fylgja eftir vinsældum frumburðarins Baldurs með nýrri plötu á árinu og tónleikaferð til útlanda. Strákarnir í Leaves eru einnig með sína fjórðu plötu á teikniborðinu sem er væntanleg á fyrri hluta ársins. Hljómsveitin Valdimar ætlar í hljóðver í maí og því má búast við nýrri plötu fyrir næstu jól. Sú síðasta, Undraland, fékk góðar viðtökur, enda hafði hún að geyma hið vinsæla lag Yfirgefinn. Sigursveit Músíktilrauna 2004, Mammút, er einnig með sína fyrstu plötu í fjögur ár í undirbúningi og Bang Gang er sömuleiðis með nýtt efni í burðarliðnum, rétt eins og reggíbandið Ojba Rasta, rokkararnir í Benny Crespo's Gang og Bubbi Morthens sem ætlar að fylgja eftir vinsælu sálarplötunni sinni með enn einni sólóskífunni.Friðrik Dór og Högni í Hjaltalín.Hjaltalín ætlar að taka upp sína þriðju plötu í þessum mánuði. Þrjú ár eru liðin síðan sveitin sendi frá sér hina vel heppnuðu Terminal, sem var valin plata ársins hjá sérfræðingum Fréttablaðsins. Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson virðast ætla að skiptast á að gefa út plötur. Núna er röðin komin að Friðriki Dór og í þetta sinn stjórnar tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds upptökunum. Útkoman birtist í byrjun sumars. Svo er það spurning hvort Mugison og Páll Óskar hamri járnið á meðan það er heitt og gefi aftur út á árinu. Mugison vonast til að taka upp sína fyrstu mirstrument-plötu og Páll Óskar ætlar að taka upp slatta af nýjum lögum fyrir næstu sólóplötu sína, þá fyrstu í fimm ár. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Sonur Mari og Njarðar fæddur Lífið Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist „Ég vil vera bestur í öllu“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið Fleiri fréttir Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Sjá meira