Seldi hátt í 20 þúsund plötur 3. janúar 2012 14:00 Plötur með Helga Björnssyni seldust í hátt í tuttugu þúsund eintökum á síðasta ári. fréttablaðið/stefán „
Þú segir mér ánægjulegar fréttir,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson. „Það er ákaflega gaman þegar vel gengur og ég er þakklátur fyrir að fólk hafi gaman af þessu.“ Árið 2011 seldi Helgi hátt í tuttugu þúsund plötur á Íslandi, sem gerir hann að næstsöluhæsta tónlistarmanni landsins á eftir Mugison. Þriðja hestamannaplata hans, Ég vil fara upp í sveit, seldist í um átta þúsund eintökum fyrir jól, auk þess sem plata hans með stórtónleikum í Hörpunni 17. júní seldist í hátt í sex þúsund eintökum, sem kom nokkuð á óvart. Þar fyrir utan seldust fyrstu tvær hestamannaplötur hans og Reiðmanna vindanna samanlagt í um 3.500 eintökum á árinu. Þá eru ótalin þau um það bil eitt þúsund eintök sem seldust af safnplötu Grafíkur, sem Helgi söng með hér á árum áður. Aðspurður segist Helgi búast við því að halda aðra dægurperlu-tónleika í Hörpunni í sumar. Óvíst er þó hvort plata með þeim tónleikum kemur út annað árið í röð. Hestamannaplötur hans þrjár hafa samanlagt selst í um 32 þúsund eintökum. Spurður hvort fjórða platan komi út á árinu segir hann það óákveðið. „Landsmót hestamanna verður í Reykjavík á þessu ári. Það ýtir kannski á mann eitthvað.“ Fari svo að Helgi sendi hvorki frá sér dægurperlu- né hestamannaplötu á árinu segir hann vel koma til greina að gera sólóplötu með nýju efni, þá fyrstu í þrettán ár. „Það fer að koma tími á það.“- fb
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Fleiri fréttir Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Sjá meira