Bauð upp á pönnsur 2. janúar 2012 19:00 Anna Kristjánsdóttir. Fréttablaðið/Stefán
Anna Kristjánsdóttir, vélfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, varð sextug föstudaginn 30. desember. Hún er ekkert fyrir að leigja sali undir stórfagnaði heldur hélt upp á afmælið heima og steikti pönnukökur ofan í gesti. „Þetta var bara létt og huggulegt. Ég þurfti reyndar að sýna kisunum mínum smá ruddaskap og loka þær inni í herbergi á meðan, en þær sýndu því skilning blessaðar," segir Anna brosandi. „Annars er lítið hægt að gera í öllum þessum snjó, ég leggst kannski bara í ferðalög í sumar og tek þetta betur út þá," bætir hún við en segist annars ekki vön að halda sérstaklega upp á afmælisdaginn sinn. Hún hafi haldið upp á tvítugs- og þrítugsafmælin en svo hafi orðið hlé á afmælisveisluhaldi. „Ég á alveg eftir að halda upp á fertugs- og fimmtugsafmælið, ætli ég geri það ekki bara á sjötugsafmælinu og haldi upp á eftirlaunin í leiðinni," segir hún glettin. En hvernig tilfinning er að standa á sextugu? „Það leggst bara vel í mig. Ég hef nú verið að stríða einum jafnaldra mínum og kalla hann Steina „gamla" síðasta hálfa árið. Honum finnst líka skelfilegt að þurfa að mæta í vinnu með „gömlu kellingunni" á nýja árinu," segir Anna hlæjandi en bætir svo við að auðvitað sé ánægjulegt að ná þessum aldri. „Það eru ekki allir svo lánsamir og ég þakka fyrir hvert ár. Þetta er líka spurning um að halda heilsunni sem lengst og hún er sem betur fer í lagi ennþá." heida@frettabladid.is
Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Ískaldir IceGuys jólatónleikar Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið „Var fljót að henda kjólnum aftur niður og labba inn á sviðið“ Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna Lífið „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Fleiri fréttir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Sjá meira