Kjaftar um kynlíf í beinni 4. september 2012 15:15 Sigríður Dögg Arnardóttir, þann 10. september næstkomandi fer fyrsti útvarpsþáttur hennar, Kjaftað um kynlíf, í loftið á K100,5. "
Hver man ekki eftir Dr. Love á sínum tíma? Þessi þáttur verður á svipuðum nótum þar sem hlustendur geta hringt inn og fengið svör," segir kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnardóttir en þann 10. september næstkomandi fer fyrsti útvarpsþáttur hennar, Kjaftað um kynlíf, í loftið á K100,5. Þátturinn Kjaftað um kynlíf verður á faglegu og fræðandi nótunum en þó með skemmtilegu ívafi. Sigríði, eða Siggu Dögg eins og hún er kölluð, fannst vanta vettvang þar sem fólk gæti komið með spurningar um kynlíf. "Ég er alltaf að leita leiða til að auka umræðuna um kynferðisleg málefni. Mér datt þetta í hug og fannst þátt á borð við þennan vanta hér landi en svona þættir eru mjög algengir og vinsælir erlendis," segir Sigga Dögg sem stendur vaktina milli 22-24 á mánudagskvöldum þar sem hún verður með opna símalínu ásamt því að svarar spurningum sem hún fær sendar í tölvupósti. "Ég heiti að sjálfsögðu fullri nafnleynd en ég hef áður verið með innslög í útvarpi og sá þá hversu margir hafa áhuga á málefninu." Sigga Dögg einbeitir sér að einu umfjöllunarefni í hverjum þætti og fær til sín gesti. Meðal þess sem verður til umfjöllunar í þættinum er BDSM-heimurinn, kynlífsráðgjöf og -meðferðir, kynlífstæki og erótískar bókmenntir. "Ég fæ til mín konur sem eru með heimasölu á kynlífsleikföngum og fæ að vita hvað er vinsælast í dag, einnig fræðumst við um kynlífsráðgjöf og svo er ég að stofna erótískan bókaklúbb sem fær sitt pláss í einum þætti," segir Sigga Dögg, spennt að hefjast handa en hægt er að senda henni póst með spurningum eða ábendingum á sigga@siggadogg.is. - áp
Mest lesið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Sjá meira