Pabbi rót fylgir The Vintage Caravan til Rúmeníu 26. mars 2012 21:00 The Vintage Caravan. Mynd/Anton „
Við verðum vonandi landinu til sóma," segir Óskar Logi Ágústsson, söngvari og gítarleikari The Vintage Caravan. Rokktríóið vann íslensku undankeppni hljómsveitakeppninnar Global Battle of the Bands um helgina og tryggði sér þar með þátttökurétt í lokaúrslitunum sem verða haldin í Rúmeníu í júní. „Þetta gekk framar okkar vonum því við bjuggumst ekkert við því að vinna þetta. Það verður mikill stökkpallur fyrir okkur að fara út," segir Óskar Logi. „Við ætluðum að reyna að fara eitthvað út í sumar en vorum eiginlega búnir að gefast upp á því. Við ætluðum að gera þetta vel árið 2013 en síðan rættist sá draumur að fara til útlanda í fyrsta sinn að spila." The Vintage Caravan sækir innblástur sinn í klassískt rokk frá árunum í kringum 1970 frá sveitum á borð við Led Zeppelin, Cream, Deep Purple, Jimi Hendrix, Trúbroti og Óðmönnum. Meðal nýlegra sveita í uppáhaldi eru The Mars Volta og The Black Keys. Hljómsveitin hét upphaflega The Vintage og tók þátt í Músíktilraunum árið 2009 þar sem hún lenti í þriðja sæti. Óskar Logi var jafnframt valinn gítarleikari keppninnar. Haustið 2010 breyttist nafnið í The Vintage Caravan og sveitin spilaði á Iceland Airwaves. Fyrsta platan kom í verslanir í maí í fyrra eftir að sveitin gerði dreifingarsamning við Senu. Strákarnir voru mjög duglegir við tónleikahald í fyrra og spiluðu tvisvar til þrisvar sinnum um hverja helgi. „Það var alveg brjálað að gera. Við spiluðum okkur dálítið inn á kortið," segir Óskar Logi. Fimm laga stuttskífa kom svo út í febrúar til að minna fólk á hljómsveitina. Þeir félagar koma frá Álftanesi og eru allir í menntaskóla. Foreldrar þeirra hafa verið duglegir við að styðja við bakið á þeim og til dæmis var pabbi Óskars að stilla upp hljóðfærunum fyrir strákana á Gauknum um helgina. „Hann er kallaður pabbi rót. Hann kemur og rótar og hlustar. Pabbi hefur ekki misst af tónleikum með okkur í einhver tvö ár. Það er alltaf flott að hafa gamla karlinn á kantinum," segir hann og býst fastlega við því að „sá gamli" komi með til Rúmeníu. Spurður hvernig hann metur möguleika The Vintage Caravan í Rúmeníu þar sem sigurlaunin eru tæpar þrettán milljónir króna segir Óskar Logi: „Við vonum bara það besta. Við trúum alveg á okkur sjálfa og reynum að rúlla þessu upp." freyr@frettabladid.is
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Fleiri fréttir Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum Sjá meira