Svaf á meðan Endless Dark var húðflúrað á höfuð hans 15. febrúar 2012 14:15 Sindri Már Sigrúnarson svaf allan tímann á meðan hann lét húðflúra Endless Dark á höfuðið á sér. fréttablaðið/anton „
Ég svaf allan tímann. Það er asnalegt hvað þetta var þægilegt," segir Sindri Már Sigrúnarson, aðdáandi rokksveitarinnar Endless Dark sem er ættuð frá Ólafsvík og Grundarfirði. Hann gerði sér lítið fyrir og lét húðflúra nafn sveitarinnar á höfuðið fyrir skömmu. „Ég er mjög mikill aðdáandi Endless Dark. Frá því að ég heyrði í þeim í fyrsta skipti hef ég hlustað mikið á þá og viljað fá þetta tattú. Ég var á tónleikum með þeim um daginn og ákvað að láta slag standa og kýla á þetta," segir Sindri Már. Hann dreif sig í Bleksmiðjuna í Reykjavík og segist ekki hafa fundið fyrir neinu. „Þetta var bara svæfandi. Ég var byrjaður að slefa og læti. Þetta var lúxus miðað við marga aðra staði." Sindri Már er með hvorki fleiri né færri en 27 önnur húðflúr á líkamanum, þar af eitt annað á höfðinu með hljómsveitinni Urmull. Hún er frá Ísafirði, rétt eins og hann sjálfur. „Ég heyrði fyrst í Urmull 1994 þegar þeir gáfu út plötuna Ull á víðavangi. Ég hef ekki hætt að hlusta á þá síðan og á plötuna þeirra ennþá í plastinu." Annað húðflúr er í vinnslu, tileinkað bandarísku þungarokkssveitinni Avenge Sevenfold. Það verður risastórt og mun ná yfir allan brjóstkassan á honum. „Maður er „soddann" rokkari." Atli Sigursveinsson, gítarleikari Endless Dark, kynntist Sindra Má fyrst þegar hann keypti bassa af Hólmkeli Leó Aðalsteinssyni úr Endless Dark. „Það er kúl að einhver sé að fá sér tattú með okkur, hvað þá á hausinn," segir Atli. „Þetta er samt seinasti staðurinn sem ég myndi fá mér tattú á. Þetta er dálítið brjálæði en samt kúl fyrir okkur." freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Einar og Milla eiga von á dreng Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira