Mynd Hugleiks besta afmælisgjöf allra tíma 8. febrúar 2012 12:00 Judd Apatow, einn farsælasti framleiðandi Hollywood um þessar mundir, fékk þessa mynd Hugleiks í afmælisgjöf frá starfsfólki sínu. „
Þessi mynd hefur snert einhverja taug hjá honum," segir skopmyndateiknarinn og uppistandarinn Hugleikur Dagsson. Leikstjórinn og framleiðandinn Judd Apatow fagnaði 44 ára afmælinu sínu í desember á síðasta ári. Apatow er mikill aðdáandi Hugleiks og fékk eina af myndum hans í afmælisgjöf frá starfsfólki sínu. „Skrifstofan hans Judd Apatow hafði samband við mig. Starfsfólkið hans ætlaði að gefa honum flotta gjöf og athugaði hvort ég ætti einhverjar myndir," segir Hugleikur. Íslenska útgáfa myndarinnar, sem var í sérstöku uppáhaldi hjá Apatow, er í eigu tónlistarmannsins Árna Vilhjálmssonar úr hljómsveitinni FM Belfast, þannig að Hugleikur teiknaði nýja útgáfu af myndinni og sendi til Kaliforníu. „Ég fékk þau skilaboð að þetta væri besta afmælisgjöf allra tíma," segir hann. Judd Apatow er einn allra farsælasti framleiðandi, handritshöfundur og leikstjóri Hollywood um þessar mundir. Hann er maðurinn á bak við gamanmyndir á borð við The 40 Year Old Virgin, Knocked Up, Pinapple Express ásamt því að hafa framleitt myndir á borð við Bridesmaids og Get Him to the Greek. Apatow birti teikningar Hugleiks í bókinni I Found This Funny, sem kom út fyrir tæpum tveimur árum. Þar er Hugleikur á meðal snillinga á borð við Steve Martin, Jon Stewart, Adam Sandler og Ernest Hemingway sem eiga efni í bókinni.Hugleikur Dagsson rithöfundur.Hversu mikið rukkaðirðu fyrir myndina? „Ég rukkaði bara hefbundinn prís," segir Hugleikur, en bætir við að starfsfólk Apatow hafi að auki sent honum pakka með DVD-myndum framleiðslufyrirækisins. Í pakkanum var einnig sérstök viðhafnarútgáfa þáttanna Freaks and Geeks, sem Apatow framleiddi rétt fyrir aldamót. „Ég hef alltaf viljað eiga það á DVD og á núna flottan pakka," segir Hugleikur.En veistu hvar myndin hangir? „Ég hef ekki hugmynd. Ætli hún sé ekki upp á vegg á skrifstofunni hans." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira