Brynhildur Ólafs stýrir Eddunni 12. janúar 2012 09:00 Brynhildur Ólafsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Eddunnar en alls bárust 98 verk til íslensku sjónvarps-og kvikmyndaakademíunnar. Fréttablaðið/Anton
Alls bárust 98 verk til Eddunnar, íslensku sjónvarps-og kvikmyndaverðlaunanna. Þetta eru ögn fleiri verk en bárust í fyrra að sögn Brynhildar Ólafsdóttur, nýráðins framkvæmdastjóra Eddunnar. Brynhildur var um árabil fréttamaður á Stöð 2, var síðan upplýsingafulltrúi hjá Saga Capital en hefur að undanförnu unnið fyrir framleiðslufyrirtækið Saga Film og verið leiðsögumaður. Brynhildur, sem tók við starfinu í síðustu viku, segir þar mestu muna um sjónvarpsverk. Í fyrra bárust 36 verk í þeim flokki en í ár eru þau 63 eða um 75 prósentum fleiri. „Þarna er auðvitað um að ræða bæði leikið efni og svo alla aðra sjónvarpsþætti, lífsstílsþætti, frétta- og viðtalsþætti, skemmtiþætti og annað í þeim dúr,“ segir Brynhildur en nú taka fjórar valnefndir til starfa sem velja það besta úr hverjum flokki fyrir sig. Þær skila sínum tilnefningum 3. febrúar en verðlaunin sjálf verða afhent rúmum hálfum mánuði síðar, laugardaginn 18. febrúar í Gamla bíói í beinni útsendingu Stöðvar 2. Að sögn Brynhildar berjast níu kvikmyndir um hylli valnefndarinnar. Aðeins þrjár hljóta hins vegar náð fyrir augum nefndarinnar og því ljóst að baráttan um þá tilnefningu verður ansi hörð. „Reglurnar eru þær að ef myndirnar eru fleiri en tíu þá eru fimm tilnefndar. Ef þær eru hins vegar færri þá eru þrjár tilnefndar,“ útskýrir Brynhildur. -fgg
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Krummi kveður pabba sinn Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira