Blur í hljóðver eftir Brits 12. janúar 2012 15:00 Blur-liðar ætla að leika nokkur gömul lög þegar þeir verða heiðraðir á Brits. Hugsanlega fer hljómsveitin í hljóðver skömmu eftir það. nordicPhotos/Getty
Hin goðsagnakennda hljómsveit Blur, með fyrrum Kaffibarseigandann Damon Albarn fremstan í flokki, mun væntanlega koma fram á Brit-verðlaununum í næsta mánuði. Talið er líklegt að hljómsveitin muni í kjölfarið bregða sér í hljóðver. Blur hefur ekki verið starfandi síðan 2003 fyrir utan litla tónleikaröð 2009. Þeir munu hins vegar taka við heiðursverðlaunum Brit og í kjölfarið leika nokkra gamla og góða Blur-slagara. „Það verður mjög skondið að spila þessi lög á ný,“ hefur tónlistartímaritið NME eftir gítarleikaranum Graham Coxon. Hann bætti því við að meðlimir hljómsveitarinnar hafi verið að hittast af og til en ef þeir ætluðu sér að gera eitthvað þá yrðu þeir að taka hlutina fastari tökum. „Ef Blur gerir eitthvað í hljóðveri þá verður það að vera flott og metnaðarfullt. Annað sæmir ekki þessari hljómsveit,“ segir Coxon. Alex James, sem plokkar bassann í Blur, sagði að þeir myndu mögulega fara í hljóðver. En hugsanlega yrði það ekki meira en bara smáskífa. „Er breiðskífa ennþá til? Og þarf hún alltaf að koma út með tólf lögum?“
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Fleiri fréttir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Sjá meira