Sport

Ingimundur: Er að reyna að ná Guðjóni Val

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
Ingimundur Ingimundarson átti eins og svo margir aðrir í íslenska liðinu stórleik þegar að strákarnir okkar unnu sigur á Svíum í kvöld, 33-32. Mest varð forystan hjá Íslandi sjö mörk í leiknum en Svíar náðu að gera leikinn mjög spennandi í lokin.

„Þetta var skrýtinn endir á leiknum. Það hefði verið skemmtilegra að klára þetta almennilega. Við þurfum líka að skoða betur hvað gerðist hjá okkur á síðustu fimm mínútum leiksins," sagði Ingimundur.

„Við misstum reyndar marga út af í brottvísanir og fengum höndina oft upp á okkur eftir aðeins nokkrar sendingar. En engu að síður frábær sigur og við erum á góðri siglingu og höldum bara áfram."

Svíar byrjuðu af miklum krafti en Ingimundur segir að þeir hafi verið undirbúnir fyrir það. „Þeir náðu samt að setja nokkur mörk á okkur með hröðum upphlaupum, einfaldlega vegna þess að við náðum ekki að framkvæma skiptingarnar. En eftir það náðum við að laga þetta og þá fór þetta að smella hjá okkur. Hraðaupphlaupsmörkin komu og fyrri hálfleikur varð mjög góður hjá okkur."

„Eftir góða byrjun í seinni hálfleik kom svo smá hik á okkur. Ég veit ekki af hverju en kannski var það erfitt að spila svona seint að kvöldi eftir að hafa spilað tvo morgunleiki. Það var ekki auðvelt að breyta svona mikið til," sagði Ingimundur en leikurinn í kvöld hófst klukkan 21.15 að staðartíma. Ísland lék fyrstu tvo leikina tæpum hálfum sólarhring fyrr.

Ingimundur skoraði tvö hraðaupphlaupsmörk í kvöld og hefur verið nokkuð drjúgur í þeim á mótinu. „Ég vildi bara að þetta myndi gerast oftar. Ég er að reyna að ná í hælana á Guðjóni Val," sagði hann og hló. „En það er fátt betra að fá að lauma einu inn úr hraðaupphlaupi eftir góðan varnarleik."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×