Bekkjarsystur demba sér í auglýsingabransann 19. janúar 2012 14:00 Þær Svala Hjörleifsdóttir, Júlía Hvanndal, Arna Rún Gústafsdóttir og Jóna Berglind Stefánsdóttir stofna auglýsingastofuna Undralandið en þær eru allar menntaðar grafískir hönnuðir. Mynd/Anton „
Þetta er alltaf áhætta en maður verður bara að taka stökkið," segir Svala Hjörleifsdóttir, framkvæmdastýra nýju auglýsingastofunnar Undralandið. Auglýsingastofan var stofnuð í byrjun árs en á bak við hana standa fjórar bekkjarsystur úr Listaháskólanum. Ásamt Svölu eru Júlía Hvanndal, Jóna Berglind Stefánsdóttir og Arna Rún Gústafsdóttir eigendur stofunnar en þær eru allar menntaðar í grafískri hönnun. „Við fengum þessa hugmynd eftir að við útskrifuðumst síðasta vor. Þá byrjuðum við allar í ýmsum lausamennskustörfum og langaði að kanna möguleikana hvort við gætum ekki unnið allar saman," segir Svala en stúlkurnar eru góðar vinkonur og vinna vel saman að hennar sögn. „Við unnum mjög mikið saman í skólanum og erum til dæmis saman í kvenfélagi sem hittist reglulega." Þegar stúlkunum bauðst húsnæðið fyrir skrifstofuna fyrir ofan Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda á Laugavegi 21 var ekki aftur snúið. „Við erum búnar að koma okkur vel fyrir og á besta stað í bænum," segir Svala og bætir við að þær séu hvergi bangnar við að fóta sig meðal auglýsingarisanna á Íslandi í dag. „Við erum byrjaðar af krafti og höfum fengið mikinn meðbyr. Við höfum verið að takast á við ýmiss konar verkefni og ímyndarsköpun hjá nýjum fyrirtækjum sem er mjög skemmtilegt. Við teljum okkur koma með nýjar áherslur og hugmyndir þar sem við erum nýútskrifaðar og svo erum við allar kvenkyns, sem sker okkur óneitanlega frá öðrum skrifstofum," segir Svala og bætir við að ef þetta gengur ekki upp búi þær alltaf að reynslunni sem fylgir því að stofna eigið fyrirtæki. Svala segir að það hafi verið smá stökk fyrir þær að fara frá skólastofunni á mikilvæga fundi með væntanlegum viðskiptavinum. „Þetta voru mikil viðbrigði en kvíðahnúturinn minnkar og minnkar með hverjum fundinum. Okkur hefur verið tekið ótrúlega vel. Það þýðir ekkert annað en að henda sér út í djúpu laugina og prófa sig áfram." Hægt er að skoða nánar starfsemi og verk stúlknanna í Undralandi á vefsíðunni undralandid.is. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun South Park verður South America Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Lífið Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Kappsmál sett á ís Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Fleiri fréttir Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Sjá meira