Samdi við eina af virtustu umboðsstofum Hollywood 19. janúar 2012 10:30 Jóhann Jóhannsson samdi við eina af virtustu umboðsskrifstofum fyrir tónskáld í Hollywood.
Það er spennandi ár fram undan hjá tónlistarmanninum Jóhanni Jóhannsyni. Hann verður viðstaddur kvikmyndahátíðina Sundance um næstu helgi. Tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson hefur nýlokið við að semja tónlist við bandarísku kvikmyndina For Ellen sem verður heimsfrumsýnd á Sundance-hátíðinni í Utah um næstu helgi. Þar verður Jóhann einmitt viðstaddur. Með aðalhlutverkin fara Paul Dano, sem lék annað aðalhlutverkanna í The Good Heart eftir Dag Kára, og Jon Heder sem sló í gegn í gamanmyndinni Napolean Dynamite. Jóhann skrifaði nýverið undir samning við eina virtustu umboðsskrifstofu kvikmyndatónskálda í Hollywood; Gorfein/Schwartz. Mörg af helstu kvikmyndatónskáldum heims eru á mála hjá stofunni, þar á meðal John Williams, Thomas Newman, James Newton Howard og James Horner. Tónskáld á vegum skrifstofunnar hafa samtals verið tilnefnd 128 sinnum til Óskarsverðlauna. „Þetta er frábær skrifstofa. Þeir eru með mjög góð sambönd inn í kvikmyndaheiminn þarna vestur frá, þannig að þetta er gott tækifæri fyrir mig. Þeir eru í tengslum við verkefni sem eru stærri og umfangsmeiri,“ segir Jóhann, sem hefur að meðaltali gert tónlist við tvær kvikmyndir eða heimildarmyndir á ári undanfarin ár. „Þetta er nýtt skref. Það er búið að vera nóg að gera á undanförnum árum hjá mér en þetta er næsta þrep.“ Tvær heimildarmyndir eru í bígerð hjá Jóhanni. Fyrst er það Free the Mind eftir danska leikstjórann Phie Ambo og eftir það tekur við The Man Who Saved the World. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær verður frumflutt 3. febrúar í Winnipeg tónverk Jóhanns, A Prayer to the Dynamo. Stjórnandi Nýju tónlistarhátíðarinnar í Winnipeg pantaði verkið hjá Jóhanni og byrjaði hann að semja það síðasta vor. „Þetta er frábært tækifæri fyrir mig. Þetta er stærsta hljómsveitarverk sem ég hef samið hingað til,“ segir hann og stefnir á að taka það upp seinna á árinu með útgáfu í huga. Í júní kemur svo út endurútgáfa Jóhanns af „Protest“ úr óperunni Satyagraha eftir tónskáldið Philip Glass. Hildur Guðnadóttir syngur í laginu sem er hluti af heiðursplötu með endurútgáfum Glass í tilefni 75 ára afmælis hans. Þónokkrir tónleikar eru fram undan hjá Jóhanni, þar af þrennir í N-Ameríku. Þeir fyrstu fara fram í Vetrargarði World Financial Center í New York þar sem Jóhann mun flytja tónlist sína við kvikmyndina The Miner‘s Hymns. Síðustu tónleikarnir fara fram í Los Angeles 8. febrúar þar sem Jóhann kemur fram með Formalist kvartettnum. Í maí heldur Jóhann svo í Evróputúr með Dustin O‘ Halloran og Hauschka. Þeir eru allir á mála hjá 130701 útgáfunni sem heyrir undir Fat Cat. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Sjá meira