Lífið

Salan á Gillz hrundi

Kápa bókarinnar.
Kápa bókarinnar.
„Þetta var langt undir væntingum og vonum," segir Jónas Sigurgeirsson hjá Bókafélaginu um söluna á nýjustu bók Egils "Gillzeneggers" Einarssonar, Heilræði Gillz.

Bókin er sú fjórða í röðinni frá Agli og kom út í haust, áður en hann og kærasta hans voru kærð fyrir nauðgun. Eftir kæruna bjuggust margir við því að salan á bókinni yrði langt undir því sem búast mátti við og það hefur komið á daginn.

„Hún seldist minna en ætla má," segir útgefandinn Jónas og bætir við að salan hafi dregist saman um 3/4 hluta, eða 75%, miðað við tvær síðustu bækur Egils, Lífsleikni Gillz og Mannasiðir Gillz. Þær seldust í um sex þúsund eintökum hvor og því er ljóst að um 1.500 eintök af nýju bókinni voru keypt fyrir jólin.

Jónas Sigurgeirsson.
Spurður hvort til greina hafi komið að taka bókina úr umferð og hætta að selja hana í bókabúðum eftir að Egill var kærður svarar Jónas því neitandi.

Sjónvarpsþættirirnir Mannasiðir Gillz, sem byggja á bókum Egils, voru sýndir á Stöð 2 í vetur. Búið er að taka upp aðra þáttaröð en hún verður ekki sýnd á meðan mál hans er til rannsóknar hjá lögreglunni. Að henni lokinni verður tekin ákvörðun um hvort þættirnir verða sýndir. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.