Aðstoða við makaleitina 25. ágúst 2012 10:00 Gerður Huld Arinbjarnardóttir og Rakel Ósk Orradóttir aðstoða einstaklinga við að finna ástina. fréttablaðið/gva „
Þessi þjónusta er til víða um heim og við ákváðum að prófa að koma einni slíkri á laggirnar hér því okkur fannst þetta vanta,“ segir Gerður Huld Arinbjarnardóttir, önnur tveggja eigenda Sambandsmiðlunar. Fyrirtækið er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er ætlað að aðstoða fólk sem er í makaleit. Þjónustan sem Sambandsmiðlun veitir er ætluð einstaklingum er hafa náð 25 ára aldri og eru í makaleit. Þangað leitar fólk sem hefur ýmist fengið nóg af skemmtanalífinu, stefnumótasíðum, var að koma úr langtímasambandi eða hefur miss maka sinn og veit ekki hvernig á að bera sig að. Þjónusta sem þessi hefur lengi verið í boði í Bandaríkjunum og kallast þar „matchmaking“. Fyrirtækið veitir tvenns konar þjónustu sem einstaklingar geta skráð sig í; sambandsmiðlunarklúbbinn og VIP-áskrift. Fyrri kosturinn veitir afslátt á uppákomur á borð við hraðastefnumót, hópstefnumót og fyrirlestra. Seinni kosturinn er sérhæfðari og persónulegri og sér félagsráðgjafi um að para einstaklinga saman. Hátt í hundrað manns hafa skráð sig í Sambandsmiðlunarklúbbinn og um fimmtíu manns í VIP-áskriftina og hafa viðtökurnar verið mun betri en Gerður og meðeigandi hennar, Rakel Ósk Orradóttir, þorðu að vona. „Við höfðum unnið mikla rannsóknarvinnu áður en við fórum af stað og vissum því að fólki þótti hugmyndin góð, en móttökurnar hafa samt verið betri en við þorðum að vona. Vonandi getum við aðstoðað einhverja við að finna ástina,“ segir hún og bætir við: „Við erum þegar byrjaðar að senda fólk á stefnumót og nokkur pör hafa farið á fleiri en eitt.” Heimasíða Sambandsmiðlunar er www.sambandsmidlun.is - sm
Mest lesið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Fleiri fréttir „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Sjá meira