Fatlaðir fá minna í fjárlögum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. september 2012 08:00 Jón Margeir Sverrisson synti til sigurs á Ólympíumóti fatlaðra. Hér er hann með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Mynd/Stefán
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár fær Íþróttasamband fatlaðra minni fjárveitingu en á þessu ári. Upphæðin lækkar um 400 þúsund krónur og er nú 21,1 milljón króna. „Hver króna skiptir máli fyrir okkur eins og alla aðra," segir Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri afreks- og fjármálasviðs hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Gulldrengurinn frá LondonÓlympíumóti fatlaðra lauk fyrir tæpri viku og fyrir aðeins fáeinum dögum síðan tók ríkisstjórnin sérstaklega á móti keppnissveitinni með mikilli viðhöfn. Fremstur í þeim flokki fór Jón Margeir Sverrisson sem vann til gullverðlauna í Lundúnum. „Við verðum fyrir niðurskurði eins og fleiri. Það er auðvitað enginn ánægður með það hlutskipti," segir Ólafur. „En því skal haldið til haga að ríkisstjórnin kom færandi hendi eftir mótið og styrkti sambandið um fjórar milljónir fyrir þann árangur sem við náðum í London. Ber okkur vissulega að þakka fyrir þann velvilja," bætir hann við. „En það kostar heilmikið að taka þátt í móti sem þessu sem og að undirbúa okkar keppendur fyrir þátttöku eins vel og kostur er. Það má segja að við vorum þegar búnir að eyða þeirri upphæð áður en við fengum styrkinn." Fjárveiting sem hvarf í hruninuÍþróttasamband fatlaðra fann einnig fyrir hruninu á sínum tíma. „Fram til ársins 2009 fékk Ólympíuráð fatlaðra sérstaka fjárveitingu upp á þrjár milljónir á ári. Sú fjárveiting var þá tekin af okkur og hefur aldrei komið til baka," segir Ólafur. Sambandið hélt þó áfram sínu striki enda undirbúningur þegar hafinn fyrir Ólympíumótið í London. Það hafði þó sínar afleiðingar í för með sér. „Sambandið hefur verið rekið með tapi undanfarin tvö ár. Okkar eiginfjárstaða var þó á þann veg að við gátum haldið áfram okkar starfi en það er okkur að sama skapi fyllilega ljóst að taprekstur gengur ekki til lengdar," segir Ólafur. Krónurnar nýtast ekki jafn velÍþróttasamband fatlaðra hélt sínum helstu styrktaraðilum þrátt fyrir hrunið sem Ólafur segist þakklátur fyrir. „Okkar samstarfsaðilar hafa staðið með okkur í gegnum súrt og sætt. Þeir sýndu það í verki með því að skrifa undir nýja samninga strax eftir hrun," segir Ólafur. „En eins og við þekkjum öll hefur allur kostnaður aukist mjög eftir hrunið og því nýtast krónurnar sem við fáum frá okkar samstarfsaðilum ekki jafn vel og áður." Hann segir að sambandið muni áfram ræða við ríkisvaldið um aukna fjárveitingu og ekki síst endurupptöku styrkveitingu til Ólympíuráðs fatlaðra. Á ekki von á breytingum„Í hvert skipti sem við höfum farið á fund fjárveitingarvaldsins eftir hrun höfum við biðlað til þeirra um að taka upp þennan styrk á ný. Ég á ekki von á að það muni breytast í bráð," segir Ólafur sem neitar því ekki að við óbreytt ástand geti verið erfiðir tímar fram undan. „Ef ekkert breytist þarf maður bara að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði. Það verður svo bara að koma í ljós hvernig okkur tekst að vinda ofan af okkar málum."
Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Íslenski boltinn Sádi-Arabía - Úrúgvæ | Úr sandinum á stóra sviðið Fótbolti Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Íslenski boltinn Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Íslenski boltinn Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu Formúla 1 Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Íslenski boltinn „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Stórleikur Víkings og KR í Bestu deildinni Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Uppgjörið: KA - Fram 3-4 | Mörkunum rigndi á Akureyri í sigri Fram Sádi-Arabía - Úrúgvæ | Úr sandinum á stóra sviðið Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Stál í stál í Seattle Hitnar í kolunum: McGregor hnakkreifst við Holloway Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Nýliðarnir náðu sögulegum úrslitum gegn Evrópumeisturunum á HM Varkár Van Dijk vill ekki sjá vatnspásur Eiður Fannar og Soffía Ísabella heimsmeistarar Rekinn eftir einn leik á HM Verður Þjóðarhöllin tilbúin fyrir HM 2031? Elta Manchester United allt næsta tímabil Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Fóru yfir helstu vonbrigðin á tímabilinu Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Yfirlýsing Fylkis: Biðjast afsökunar og lofa að taka hart á málinu Sara Rós og Nicolò heimsmeistarar Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed Hermaðurinn Haukur í Stólana Amorim tekur við AC Milan Maður dagsins á HM: Bauðst að spila fyrir hitt liðið og á mág í landsliðinu Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Vann í „íslensku veðri“ og fagnaði með ís með pabba Landsliðsfyrirliðinn á leið í safaríferð til Tansaníu „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Sjá meira