Söng Sprengisand fyrir tökuliðið 6. febrúar 2012 13:15 Anna Þóra Alfreðsdóttir fyrirsæta og tannlæknanemi var valin til að leika aðalhlutverk í stórri auglýsingaherferð húðvörulínunnar Mederma Skin Care. Fréttablaðið/vilhelm „
Það er búið að vera virkilega gaman að vera hérna," segir fyrirsætan Anna Þóra Alfreðsdóttir sem var að ljúka við að taka upp stóra auglýsingarherferð í Toronto í Kanada. Anna Þóra var sérstaklega fengin í verkefnið af framleiðendunum sem tókst ekki að finna fyrirsætu við hæfi í Toronto og leituðu því til Íslands. Um er að ræða stóra auglýsingaherferð húðvörulínunnar Mederma Skin Care bæði fyrir sjónvarp og prentmiðla í Bandaríkjunum. Tökur stóðu yfir í fimm daga og var Anna Þóra í skýjunum með dvölina. „Þetta er mikið ævintýri og fagmannlega að öllu staðið hérna fyrir okkur, en við erum hérna þrjár stúlkur sem leikum aðalhlutverkin," segir Anna Þóra en annar Íslendingur var í tökuliðinu, Karl Óskarson tökumaður. „Það var æði að hafa annan Íslending þarna með mér og þeim fannst mjög skondið að heyra okkur tala íslensku. Við skemmtum hinum í tökuliðinu og ég söng meira að segja Sprengisand fyrir alla." Leikstjórar eru þau Brendan Heath og Sara Marandi en þau hafa meðal annars leikstýrt leikkonunum Nicole Kidman og Evu Longoriu í auglýsingaherferðum fyrir L"oreal og Panthene. Þau höfðu reynslu af Íslandi þar sem þau voru hér á landi síðasta sumar að taka upp auglýsingu fyrir Vera Wang Perfume. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Anna Þóra flýgur erlendis í verkefni en hún hefur tvisvar farið og leikið í Hurst myndböndum eftir að hún lék í sínu fyrsta hér á Íslandi. Hún viðurkennir að sé svo sannarlega kærkomið að fá að grípa í svona verkefni en hún er í tannlæknanámi við Háskóla Íslands. „Ég tók mér bara frí í skólanum á meðan enda gat ég ekki sleppt þessu tækifæri. Þetta er algjör draumur og í raun mikil forréttindi að fá að ferðast svona mikið í vinnunni." -áp
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira