Friðrik mætti með mömmu sína á Bessastaði 7. janúar 2012 14:00 Friðrik Ómar og Jógvan sungu nokkur vel valin lög fyrir forsetann á Bessastöðum. fréttablaðið/gva „
Þetta er miklu meira en við bjuggumst við," segir söngvarinn Friðrik Ómar. Rúmlega sautján milljónir króna söfnuðust á samstöðutónleikum hans og Jógvans Hansen í Hörpunni í nóvember vegna óveðursins sem gekk yfir Færeyjar í nóvember í fyrra. Tónleikarnir voru sýndir í Sjónvarpinu og þeim útvarpað á Rás 2 og á meðan voru landsmenn hvattir til að leggja söfnuninni lið. Friðrik Ómar, Jógvan og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhentu formanni Björgunarsveitarinnar í Færeyjum upphæðina í pönnukökuboði á Bessastöðum í gær. „Þetta var bara mjög notalegt. Það var vel tekið á móti öllum og allt saman afskaplega flott," segir Friðrik Ómar, sem var að koma á Bessastaði í fyrsta sinn. Hann hitti ekki Dorrit Moussaieff eins og hann hafði vonast eftir en Ólafur Ragnar var „alveg eldhress". „Hann stillti okkur hérna upp í hljómsveitinni eins og hann væri þaulvanur rótari," segir hann, ánægður með forsetann. „Hann sá um allt væri á réttum stað og það var greinilegt að hann hafði gert þetta áður." Friðrik Ómar og Jógvan sungu nokkur lög bæði á íslensku og færeysku við góðar undirtektir. Á meðal gesta var móðir Friðriks Ómars og var hún að vonum ánægð að koma á Bessastaði. „Það var gaman að fá hana. Hún var óvænt í borginni," sagði Dalvíkingurinn knái. - fb
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira