Hestamenn ríða í gegnum miðbæinn 27. mars 2012 11:00
Dagana 29. mars – 1. apríl verða Hestadagar í Reykjavík. Þar fá borgarbúar gott tækifæri til að kynnast íslenska hestinum. Á laugardaginn munu hestar og hestamenn verða áberandi í miðbænum og í við Ráðhúsið í Reykjavík verður margt skemmtilegt í boði fyrir alla fjölskylduna. Boðið verður upp á hestateymingar við Ráðhúsið, fyrirlestra af ýmsum toga um hestinn, sögu hans og atferli. Línudans verður kynntur og gestum og gangandi boðið að læra nokkur spor. Dagskráin í ráðhúsinu endar svo á því að Helgi Björns tekur nokkur vel valin lög. Um kvöldið halda áhugasamir svo á einstaka töltkeppni í Skautahöllinni í Laugardal, þar sem „Þeir allra sterkustu" etja kappi í tölti á ís. Hápunktur laugardagsins er SKRÚÐREIÐ um það bil 150 hesta frá Vatnsmýrarvegi, upp á Skólavörðuholt og niður Skólavörðustíginn og Bankastrætið, svo að Austurvelli og eftir Tjarnargötu inn í Hljómskálagarð og endað á sama stað og byrjað var við Vatnsmýrarveg. Sunnudagurinn er svo helgaður æskulýðnum í hestamennskunni en sýningin „Æskan og hesturinn" hefur gengið í mörg mörg ár og þar leiða saman hesta sína hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu. Ungir hestamenn sýna alls kyns kúnstir á fákum sínum í Reiðhöllinni í Víðidal og eru sýningar kl. 13 og kl. 16.Aðgangur er ókeypis og því borgar sig að mæta tímanlega! Það er Landssamband hestamannafélaga í samvinnu við Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu og hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu sem standa að viðburðinum.
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Fleiri fréttir Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum Sjá meira