Spreyta sig á Fleetwood 15. mars 2012 15:30 Gylfi Blöndal og Sigurður Magnús Finnsson. Mynd/Anton
Hópur íslenskra tónlistarmanna er að taka upp eigin útgáfu plötunnar Rumors með Fleetwood Mac. „Ég er sannfærður um að þetta eigi eftir að vera skemmtilegt og kannski pínu furðulegt líka," segir tónlistarmaðurinn Gylfi Blöndal. Hann og félagi hans, Sigurður Magnús Finnsson, eða Siggi Shaker, hafa fengið hóp íslenskra tónlistarmanna til að taka upp nýja útgáfu af plötunni Rumors með Fleetwood Mac. Hún kom út árið 1977 og er vinsælasta plata hljómsveitarinnar með lögum á borð við Go Your Own Way, Don"t Stop og Dreams. Gylfi og Sigurður eru miklir aðdáendur Fleetwood Mac og sérstaklega „Kaliforníu-popp"-skeiðs hennar eftir 1975. Í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá útgáfu Rumors ákváðu þeir að fá vini sína sem deila dálæti þeirra á Fleetwood Mac til að taka upp eigin útgáfur af lögum plötunnar. Þeir sem þegar hafa staðfest þátttöku sína eru Hjaltalín, Retro Stefson, FM Belfast, Sóley, Sin Fang og Mr. Silla, auk þess sem Pétur Ben og Snorri Helgason taka upp lag saman og einnig Borko og Lay Low. „Það sem er svolítið gaman við þetta er að ég og Siggi og flestir sem eru að spila á þessari plötu eru nánast að fæðast þegar hún er að koma út. Það er mjög líklegt að maður hafi einfaldlega fengið þessa dellu í vöggugjöf," segir Gylfi og hlær.Retro Stefson, FM Belfast og Hjaltalín hafa staðfest þátttöku sína.„Það sem er líka gaman við þessa plötu er að fólk kannski um sjötugt er að fíla hana en líka ungt fólk. Það lýsir því hversu góð lög þetta eru." Upptökur eru hafnar og stefnt er á útgáfu seint í sumar. Einnig eru tónleikar fyrirhugaðir. freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira