Verðlaunatímabilið að hefjast 6. janúar 2012 18:00 Kvikmyndirnar My Week with Marilyn og Tinker Tailor Soldier Spy verða frumsýndar um helgina. Sú fyrrnefnda fjallar um Marilyn Monroe og tíma hennar á Bretlandi en Tinker Tailor segir frá leit njósnara að rússneskum svikara á tíma kalda stríðsins.
Fyrstu mánuðir nýs árs eru sælkeraveisla fyrir unnendur verðlaunamynda og strax um helgina verða frumsýndar tvær myndir sem hafa verið nefndar sem hugsanlegir kandídatar í Óskarsverðlaunakapphlaupinu. Annars vegar er um að ræða Tinker Tailor Soldier Spy sem skartar mörgum af helstu leikurum Breta í aðalhlutverki, meðal annars Colin Firth, Gary Oldman, John Hurt og Tom Hardy, sumsé einvalalið. Leikstjóri er hinn sænski Tomas Alfredson sem gerði hina eftirminnilegu vampírumynd Låt den rätte komma in fyrir þremur árum. Alfredson er á öðrum slóðum í þessari mynd því Tinker Tailor Soldier Spy segir frá njósnaranum George Smiley sem er kallaður aftur til starfa eftir að hafa verið sestur í helgan stein. Hlutverk Smiley er að afhjúpa rússneskan njósnara innan MI6. Hin myndin er My Week with Marilyn og hún er reyndar líka bresk, leikstýrð af Simon Curtis og skartar Kenneth Branagh, Judi Dench, Emmu Watson og Michelle Williams en Williams leikur sjálfa Marilyn Monroe. Myndin segir frá því þegar Monroe kom til Bretlands til að leika í kvikmyndinni The Prince and the Showgirl 1956 með Sir Laurence Oliver. Hún var þá nýgift leikritaskáldinu Arthur Miller sem fylgdi henni á tökustað en varð síðan að snúa aftur heim. Monroe leitaði þá til Colin Clark, sem var óbreyttur aðstoðarmaður á tökustað, og hann sýndi henni dæmigerðan breskan lífstíl og hjálpaði henni að flýja stjörnulífernið um stundarsakir.- fgg
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira