Yrsa kennd við Columbia-háskólann 24. september 2012 18:00 Yrsa Sigurðardóttir er ánægð með að bók hennar skuli vera kennd við Columbia-háskóla.
Bók Yrsu Sigurðardóttur, Þriðja táknið, er kennd á námskeiðinu "Scandinavian Crime in Film and Literature" við Columbia-háskólann í New York. "Þetta er alveg frábært. Ég ætti kannski að fá gráðu út á þetta. Ég ætti að fá að taka þennan kúrs," segir Yrsa í léttum dúr. Nemandi í námskeiðinu hafði samband við hana og bað hana að svara nokkrum spurningum um söguna sem hún gerði með mikilli ánægju. Hún hefur áður fengið fyrirspurnir frá íslenskum nemendum sem eru að gera ritgerðir um bækur hennar og einnig frá Vancouver-háskóla í Kanada en þetta er í fyrsta sinn sem nemandi frá bandarískum háskóla hefur samband. Þessi fyrirspurn er til marks um aukinn áhuga á skandínavískum glæpasögum vestanhafs. "Ég get ekki ímyndað mér að fyrir fimmtán árum hefði nokkur einasti skóli í Norður-Ameríku kennt skandínavískar glæpasögur. Það hefðu alla vega verið fáir í tíma," segir Yrsa. Útgáfurétturinn á Þriðja tákninu hefur verið seldur á yfir þrjátíu tungumál, þar á meðal öll helstu tungumál Vesturlanda, auk arabísku, kínversku og japönsku, svo nokkur séu nefnd. Yrsa leggur nú lokahönd á nýja glæpasögu. Þar fær Þóra Guðmundsdóttir, sem hún kynnti til sögunnar í Þriðja tákninu, frí. Sagan gerist bæði í nútímanum og á upptökuheimili á áttunda áratug síðustu aldar. - fb
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira