Sport

Eygló: Kvefast alltaf fyrir stórmót

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Eygló, önnur frá hægri, fylgist með sundkeppninni á Ólympíuleikunum í gær.
Eygló, önnur frá hægri, fylgist með sundkeppninni á Ólympíuleikunum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkonan unga, stingur sér í Ólympíulaugina í dag í fyrsta sinn.

Þessi sautján ára stúlka er eitt allra mesta efni sem komið hefur fram í íslenska sundheiminum enda náð frábærum árangri á sínum unga ferli. Hún vann til að mynda silfur í 200 m baksundi á EM unglinga í Serbíu í fyrra.

Í apríl í ár varð hún svo fyrst íslenska sundfólksins að tryggja sér farseðilinn með því að ná lágmarkinu í 200 m baksundi. Tíminn hennar var glæsilegur en hún bætti tíma sinn frá EM unglinga um rúmar fjóra og hálfa sekúndu.

Bætingin hefur því verið gríðarlega mikil á skömmum tíma og verður því afar forvitnilegt að fylgjast með framgöngu hennar á leikunum hér í Lundúnum.

„Ég er reyndar kvefuð," sagði hún þegar blaðamaður hitti á hana í Ólympíuþorpinu hér ytra á dögunum. „Það er eitthvað sem gerist alltaf fyrir stórmót. Þegar ég er í hvíld þá fæ ég oft kvef - ég hef engar áhyggjur af þessu. Ég hlakka mjög mikið til."

Þar sem hún náði lágmarkinu í apríl síðastliðnum hefur æfingaferlið hennar verið lengra en hjá öðrum í íslenska sundhópnum. Hún byrjaði strax að þyngja æfingarnar og var af þeim sökum nokkuð frá sínu besta bæði á EM í Ungverjalandi og vormótunum í Spáni og Frakklandi.

„Það var alls ekkert stress á mér í vor og sumar vegna þess að ég var búin að ná lágmörkunum. Þess í stað gat ég einbeitt mér að æfingunum. Það er alveg klárt að ég hefði synt hraðar á EM hefði ég ekki verið búin að ná lágmörkunum enda voru öll þessi mót æfingamót fyrir mig."

Sem fyrr segir er 200 m baksund hennar sterkasta grein en í dag keppir hún í 100 m baksundi. Þar að auki keppir hún í 200 m fjórsundi og er í boðssundssveit Íslands í 4x100 m fjórsundi.

„Ég ætla bara að gera mitt besta," sagði hún um frammistöðu sína á leikana. „Ég ætla að reyna að fara eins hratt og ég get og þá sérstaklega í 200 m baksundinu. Ég er ekki með ákveðinn tíma í huga en fyrsta markmiðið er að komast áfram í undanúrslitin."

„Það getur allt gerst. Ég get hitt á góðan dag á meðan aðrir ná sér ekki á strik - eða þá öfugt. Ég ætla að synda til að ná mínu besta og sjá svo bara til hverju það skilar."

„Fyrst og síðast ætla ég að vera jákvæð og ekki eyða orku í neikvæða hluti. Ég ætla bara að hugsa um það sem ég get stjórnað sjálf."

Eygló Ósk Gústafsdóttir

17 ára úr Sundfélaginu Ægi

ÓL-greinar:

100 m baksund: 29. júlí

200 m fjórsund: 30. júlí

200 m baksund: 2. ágúst

4x100 m fjórsund: 3. ágúst




Fleiri fréttir

Sjá meira


×