Sport

Kolbrún Alda nálægt sínu besta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Kolbrún Alda Stefánsdóttir keppti í sinni lokagrein á Ólympíumóti fatlaðra í morgun þegar hún keppti í 100 m bringusundi í fötlunarflokki SB14.

Kolbrún Alda synti á 1:30,58 mínútum og var um hálfri sekúndu frá sínum besta tíma í greininni en talsvert frá Íslandsmeti Sigrúnu Huldar Hrafnsdóttur.

Hún endaði í fimmta sæti í sínum riðli og 14. sæti alls af átján keppendum. Kolbrún Alda hafði áður hafnað í tólfta sæti í 200 m skriðsundi og fjórtánda sæti í 100 m baksundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×