Hálendi og kynlífsráðgjöf í bíó 6. september 2012 17:30 Tommy Lee Jones og Meryl Streep fara með hlutverk hjóna sem hressa upp á 31 árs langt hjónabandið með því að fara í hjónabandsráðgjöf í myndinni Hope Springs.
Tvær kvikmyndir eru frumsýndar í bíóhúsum um helgina auk myndarinnar The Bourne Legacy sem er fjallað um hér fyrir ofan. Íslenska hasarmyndin Frost kemur á hvíta tjaldið annað kvöld og er hennar víða beðið af mikilli eftirvæntingu. Reynir Lyngdal leikstýrir myndinni og Björn Thors, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Helgi Björnsson og Elma Lísa Gunnarsdóttir eru meðal leikara. Frost fjallar um parið Öglu og Gunnar. Agla er jöklafræðingur og Gunnar er kvikmyndagerðamaður og þau lenda í háskalegu ævintýri á ferð sinni um hálendi Íslands þar sem þau eiga við óþekkt, en að því er virðist, banvænt afl að etja. Myndin var að stórum hluta tekin upp við erfiðar aðstæður á Langjökli. Nýjasta mynd þreföldu Óskarsverðlaunaleikkonunnar Meryl Streep, Hope Springs, kemur einnig í bíóhúsin annað kvöld. Myndin er sannarlega stjörnum prýdd því mótleikarar hennar eru þeir Tommy Lee Jones og Steve Carell. Streep og Jones leika hjón sem hafa verið gift í 31 ár. Henni finnst allur neisti vera farinn úr sambandinu og skráir þau því í vikulanga hjónabandsráðgjöf og fer Carell með hlutverk sálfræðings sem leiðir þau í gegnum vikuna og leggur fyrir þau hin ýmsu verkefni. Meðan sum þeirra eru jafn auðveld og að haldast í hendur á almannafæri þá kafar hann einnig í samlíf hjónanna og tekur kynlíf þeirra fyrir. - trs
Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Fleiri fréttir Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira