Sindri heimsækir fagurkera 7. september 2012 13:00 Sindri segist vera mikill áhugamaður um falleg heimili og áhugavert fólk, en það er akkúrat það sem nýju þættirnir hans, Heimsókn, fjalla um. Fréttablaðið/stefán „
Ég er ekki að fara að spyrja fólk hvar það hafi keypt lampann í horninu eða teppið á gólfinu. Við erum meira að fara að skoða heimilin og velta upp spurningum eins og hvað það sé sem geri heimili heimilisleg. Þess á milli kynnumst við viðmælendunum nánar og ræðum hvernig þeir tvinna saman heimilið og lífið," segir fréttamaðurinn Sindri Sindrason sem flestum er góðu kunnur úr þáttunum Ísland í dag. Sindri fer af stað með nýja lífsstílsþætti, Heimsókn, á Stöð 2 þann 15. september. Þar kíkir hann í heimsókn til fólks sem hefur ekki opnað dyr sínar fyrir almenningi áður og kynnist heimilisháttum þeirra og persónulegu lífi. „Fagurkerarnir sem við heimsækjum eru jafn mismunandi og þeir eru margir og allir með mikinn áhuga á fallegum heimilum. Við erum með allt frá hönnuðum og arkitektum til pólitíkusa og svo allt þar á milli," segir Sindri og nefnir sem dæmi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, Rut Káradóttur og Kormák úr Kormáki og Skildi. Þættina kemur Sindri til með að vinna meðfram Íslandi í dag en sjálfur segist hann vera mikill áhugamaður um falleg heimili og áhugavert fólk. - trs
Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Fleiri fréttir Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Sjá meira