Bæjarstjórinn skemmti sér með upptökustjóra Foo Fighters 5. apríl 2012 11:00 Aldís Hafsteinsdóttir, bæjastjóri í Hveragerði, sótti stjörnuprýtt brúðkaup sem fram fór í bænum um síðustu helgi. Á meðal gesta voru trommuleikari Garbage, Butch Vig, meðlimir hljómsveitarinnar Underground og sjónvarpsmaðurinn Chris Packham.
Stjörnum prýtt brúðkaup fór fram í Hveragerði um síðustu helgi og var Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, á meðal viðstaddra. Foreldrar körfuknattleiksmannsins Louie Kirkman létu pússa sig saman og á meðal gesta var Butch Vig, trommuleikari hljómsveitarinnar Garbage, meðlimir írsku sveitarinnar Undertones og sjónvarpsmaðurinn Chris Packham. „Louie hefur spilað körfubolta með Hamri undanfarinn vetur og foreldrar hans hafa heimsótt hann nokkrum sinnum og heilluðust svo af staðnum að þau ákváðu að láta pússa sig saman í Strandakirkju við hátíðlega athöfn. Maðurinn minn, Lárus Friðfinnsson, er formaður Hamars og þannig kynntumst við brúðhjónunum,“ útskýrir Aldís. „Í veislunni slógu vinir hjónanna upp bandi og líklegt er að sjaldan eða aldrei hafi betri tónlistarmenn stigið á stokk hér í Hveragerði,“ bætir hún við, en Vig þessi hefur meðal annars unnið sem upptökustjóri Nirvana, Foo Fighters og Smashing Pumpkins og veislustjórinn Packham hlaut BAFTA-verðlaunin fyrir þátt sinn The Really Wild Show. Írska pönksveitin Undertones er líklega þekktust fyrir lag sitt Teenage Kicks. Að sögn Aldísar vissi hún ekki hvaða fólk þetta var fyrr en í lok veislunnar og hafði hún þá aldrei heyrt um Undertones áður en kannaðist eitthvað við Garbage. „Ég hafði ekki hugmynd um að þetta fólk væri þekkt og ég held að fæstir hafi gert það.“ Eiginmaður Aldísar var einnig dreginn upp á svið með tónlistarmönnunum og sýndi að hennar sögn snilldartakta á kúabjöllu og uppskar mikið lófaklapp viðstaddra. - sm
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira