Áhuginn kviknaði hjá Warner Brothers 13. mars 2012 10:30 Ágústa Fanney Snorradóttir hóf nám í kvikmyndagerð í Los Angeles í haust. Hún tekur nú upp gamanþætti Ragnhildar Magnúsardóttur sem sýndir eru á Funny or Die.
Ágústa Fanney Snorradóttir stundar BA-nám í Cinema and Television Arts í Los Angeles. Hún sér að auki um tökur á gamanþáttum útvarpskonunnar Ragnhildar Magnúsdóttur sem sýndir eru á vefsíðunni Funny or Die. Ágústa Fanney byrjaði ung að gera sín eigin myndbönd og þótti fátt skemmtilegra en að festa viðburði og minningar á filmu. „Árið 2004 fékk ég að fylgjast með starfseminni í Warner Brothers kvikmyndaverinu. Þá var ég í „high school" í Arizona og fjölskylduvinur starfaði fyrir fyrirtækið og ég fékk að fara með honum í vinnuna á hverjum degi í tvær vikur. Þessi fjölskylduvinur sá um hljóðblöndun fyrir viðtöl sem tekin voru við stjörnurnar þannig að á hverjum degi var ég stödd innan um þekktustu stjörnur þessa tíma. Eftir þetta hef ég verið með kvikmyndadellu á háu stigi," útskýrir Ágústa Fanney sem hitti meðal annars aðalleikarana úr Two and a Half Men, The O.C, Bráðavaktinni og Scrubs. Ágústa flutti út síðasta haust og segir námið skemmtilegt en viðurkennir þó að sér líði stundum eins og hún sé stödd í bandarískri kvikmynd þegar hún mætir í skólann. „Lífið í skólanum er mjög frábrugðið því sem ég upplifði heima á Íslandi, sérstaklega félagslega hliðin." Ágústa Fanney og Ragnhildur kynntust í gegnum sameiginlega vinkonu og gengur samstarf þeirra vel. Aðspurð segir Ágústa að sér líði vel í Los Angeles og að hún gæti hugsað sér að búa þar og starfa að námi loknu. „Ég get vel hugsað mér að búa hér í framtíðinni. Draumastarfið er að geta unnið á sem fjölbreyttustu sviðum innan kvikmyndagerðar. Þetta er einfaldlega allt svo spennandi." - sm
Mest lesið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Lífið Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) Áskorun Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tíska og hönnun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Fleiri fréttir Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Sjá meira