Sport

Þormóður: Ég er ekki aumari en hann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Þormóður Jónsson ætlar að selja sig dýrt gegn Ameríkumeistaranum í dag.
Þormóður Jónsson ætlar að selja sig dýrt gegn Ameríkumeistaranum í dag. Mynd/Valli
Keppni í +100 kg flokki í júdó á Ólympíuleikunum í London hefst í dag og á Ísland sinn fulltrúa þar. Þormóður Árni Jónsson verður í eldlínunni á sínum öðrum Ólympíuleikum í röð en síðast komst hann í 16-manna úrslit og var aðeins hársbreidd frá því að fara enn lengra.

Þormóður er einn 32 glímukappa í flokknum en keppt er með útsláttarfyrirkomulagi. Óhætt er að segja að Þormóður hafi verið óheppinn með andstæðing því hann dróst gegn Brasilíumanninum Rafael Silva strax í fyrstu umferð.

Silva þessi er einn allra besti júdómaður heims – ríkjandi Ameríkumeistari og í þriðja sæti heimslistans. Þormóður hefur nú haft viku til að undirbúa sig og telur sig vera reiðubúinn að veita Brasilíumanninum alvöru samkeppni.

Ekki svo hroðalega sterkur
Mynd/Valli
Þjálfari hans, Bjarni Friðriksson, vann brons í júdó á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 1984 og er margreyndur í íþróttinni. Hann og Þormóður hafa undirbúið sig af kostgæfni fyrir bardagann í dag.

„Ég glímdi við hann í fyrra og við höfum skoðað upptöku af glímunni. Þar sáum við nokkra jákvæða punkta en líka neikvæða sem við höfum reynt að laga. Við þykjumst vera komnir með keppnisáætlun gegn honum," segir Þormóður við Fréttablaðið en þeir Silva mættust í bronsglímu á heimsbikarmóti í Varsjá í fyrra.

Hann segir að Silva sé bæði stærri og þyngri en hann sjálfur – það segi þó ekki alla söguna. „Ég er örugglega ekkert aumari en hann þó svo að hann sé stærri. Mér finnst hann ekkert svo hroðalega sterkur. Hann er langur og það er erfitt að komast yfir hann enda ætla ég ekki að reyna það," segir Þormóður ákveðinn.

„Ég verð að passa vel að hann nái ekki að stöðva mig. Þá verð ég sitjandi bráð. Ég verð að vera á mikilli hreyfingu og stöðva á honum hægri höndina – hún er hans mesti styrkur. Ef ég næ að trufla hana er aldrei að vita hvað gerist."

Silva vann umræddan bardaga gegn Þormóði á ippon – fullnaðarsigri.

„En það var eftir þrjár eða fjórar tilraunir hjá honum. Það var ein mínúta eftir af glímunni og jafnt á stigum. Þá var ég heldur ekkert búinn að skoða hann en nú hef ég haft viku til að undirbúa mig. Nú veltur allt á mér að framkvæma þá áætlun sem við höfum samið og halda einbeitingu."

Riner er ógnarsterkur
Mynd/Valli
Ólympíugull eru eftirsóttustu verðlaunin í júdóheiminum og því allir sem vilja komast á leikana. Sá sem þykir langlíklegastur til sigurs í flokki Þormóðs er Frakkinn Teddy Riner. Hann hefur verið nánast ósigrandi síðustu ár.

„Ég myndi allavega veðja bankabókinni á hann," sagði Þormóður í léttum dúr. „En það hafa verið óvænt úrslit í öðrum flokkum hér á leikunum og það er gríðarlega mikil pressa á honum vegna þess að allir reikna með því að hann sigri. En hann dróst gegn góðum andstæðingi í fyrstu umferð – einum þeim allra kröftugasta í flokknum," segir Þormóður.

„Það er enginn öruggur í þessari íþrótt. Einbeitingarskortur eða kæruleysi í eitt augnablik geta verið dýrkeypt og þá er þetta búið á augabragði. Þannig ætla ég að nálgast keppnina."

Hann neitar því ekki að það hafi verið svekkjandi að dragast gegn svo sterkum andstæðingi í fyrstu umferð en dvelur þó ekki lengi við það. „Það er alltaf hægt að stelast áfram. Ef ég vinn Brassann þá fæ ég bara aðeins auðveldari andstæðing í næstu umferð. Það er mér í vil."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×