Enski boltinn

Fagnaði marki með því að fá sér pylsubita | myndband

Billy Sharp, leikmaður Nott. Forest, fagnaði marki gegn Blackpool á afar frumlegan og skemmtilegan hátt.

Hann hljóp til stuðningsmanna Forest, renndi sér á hnjánum og tók svo á móti pylsu sem einhver áhorfandi rétti honum.

Sharp fékk sér bita og hljóp svo til baka en kastaði pylsunni í burtu. Hann sá aðeins eftir því.

"Til þess er átti pylsuna. Það var of mikil tómatsósa á henni fyrir minn smekk. Ég biðst afsökunar á að hafa ekki rétt þér hana aftur. Ég skulda þér seðil gamli," sagði Sharp á Twitter eftir leikinn.

Þessa uppákomu má sjá á myndbandinu hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×