Lífið

19 ára aldursmunur stöðvar ekki sanna ást

MYNDIR / INSTAGRAM & COVER MEDIA
Leikkonan Amber Tamblyn giftist Arrested Development-stjörnunni David Cross um helgina. Amber er 29 ára en David 48 ára og þau hafa verið saman í dágóðan tíma.

Kvikmyndagerðarmaðurinn Lance Bangs deildi mynd af parinu á Instagram þar sem þau sjást dansa vangadans í brúðkaupsveislunni.

Amber og David staðfestu fréttir þess efnis að þau væru trúlofuð í ágúst í fyrra en þetta er fyrsta hjónaband þeirra beggja.

Lífið óskar þeim innilega til hamingju með áfangann!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.