Lífið

Á nærfötunum á Twitter

MYNDIR / TWITTER
Fyrirsætan Rosie Huntington-Whiteley er dugleg að auglýsa nýju undirfatalínuna sína á Twitter.

Línan hennar heitir Rosie for Autograph og er sú mest selda í verslunum Marks and Spencer. Mikill vill meira og ákvað Rosie að birta nokkrar myndir af sér léttklæddri á Twitter til að auka söluna enn frekar. Þeir sem fylgja henni á Twitter eru rúmlega 117 þúsund talsins og voru hæstánægðir með uppátækið.

"Til að fá innblástur áður en ég hannaði línuna fór ég í uppáhalds "vintage"-verslanirnar mínar og flóamarkaði í London, Los Angeles og París. Þar fann ég fjársjóðskistu af æðislegum fatnaði og skartgripum en líka myndir og mynstur úr gömlum hönnunarbókum og tískutímaritum," segir Rosie um þessa lúxuslínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.