Lífið

Sendi forseta skilaboð

Lindsay Lohan sendi Barack Obama skilaboð í gegnum Twitter þar sem hún óskaði eftir skattalækkunum handa einstaklingum á Forbes-listanum.

Obama ritaði á Twitter-síðu sína að hann hefði lækkað skatta þeirra er helst þurftu á skattalækkunum að halda; miðstéttarinnar og smáfyrirtækja. Lohan svaraði forsetanum með þessum orðum: "Við þurfum líka að lækka skatta fyrir þá sem eru skráðir milljarðamæringar á Forbes, ef þeir eru það ekki.

Þú verður að íhuga það einnig." Ummælin vöktu athygli ekki síst fyrir þá staðreynd að fáir skilja yfirleitt hvað leikkonan á við með þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.