Lífið

Vill ekki eignast börn

Ellen DeGeneres hefur engan áhuga á því að eignast börn.
Ellen DeGeneres hefur engan áhuga á því að eignast börn.
Ellen DeGeneres segist ekki hafa áhuga á að eignast börn. Orðrómur hefur verið uppi um að hún og eiginkona hennar, leikkonan Portia de Rossi, ætli að stofna fjölskyldu. Hann er greinilega ekki á rökum reistur.

"Ég veit ekki af hverju fólk vill að við eignumst börn. Ég hef sagt það svo oft að við ætlum ekki að eignast börn. Svo eru fréttir í gangi um að við séum að leita að sæðisgjafa," sagði spjallþáttastjórnandinn í viðtali við annan slíkan stjórnanda, Jay Leno. Hún bætti þó við að Leno yrði góður sæðisgjafi ef henni myndi snúast hugur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.