Lífið

Kærastinn fylgir Britney hvert fótmál

Söngkonan og nú X Factor dómarinn Britney Spears mætti í frumsýningarpartý í Kaliforníu í gær.

Britney leit nokkuð vel út en athygli vakti að kærasti hennar, Jason Trawick og jafnframt umboðsmaður var aldrei langt undan en hann virðist gæta hennar hvert fótmál og veitir þá kannski ekki af miðað við hegðun hennar í gegnum árin.

Fróðlegt verður að sjá hvernig poppdívan mun standa sig í þáttunum en miklar væntingar eru gerðar til hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.