Sport

Pistorius baðst afsökunar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Oscar Pistorius hefur beðist afsökunar á tímasetningu ummæla sinna eftir 200 m hlaup karla í T44-flokki á Ólympíumóti fatlaðra í gær.

Pistorius mátta sig sætta sig við silfur eftir að hafa tapað fyrir Brasilíumanninum Alan Oliveira sem sigraði eftir ótrúlegan endasprett.

Pistorius sagðist eftir hlaupið vera ósáttur við lengd gervifótanna sem Oliveira hleypur á. Alþjóðaíþróttasamband fatlaðra (IPC) sagði að búnaður allra keppanda hafi verið tekinn út fyrir hlaupið og staðist kröfur.

Sambandið hefur síðan þá gefið út að Pistorius muni funda með forráðamönnum þess til að ræða þessi mál frekar.

„Ég vil aldrei draga úr afrekum annarra íþróttamanna og því vil ég biðjast afsökunar á tímasetningu ummæla minna í gær," sagði Pistorius í yfirlýsingu sem birtist í morgun.

„Ég tel samt að þetta sé mál sem þurfi að ræða og ég fagna því að fá tækifæri til að ræða við IPC. Það var hins vegar rangt af því að vekja máls á þessu um leið og ég steig út af hlaupabrautinni."

„Þetta átti að snúast um sigurinn hans Alan og vil ég taka fram að ég ber mikla virðingu fyrir honum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×