Lífið

Saklausar en óþekkar

myndir/cover media
Það er ekki allt sem sýnist þegar kemur að óþekkum leikkonum sem leyna á sér í Hollywood. Þær eru þó nokkrar sem líta út fyrir að vera saklausar og ljúfar í alla staði - þar til annað kemur á daginn.

Tayolor Swift sem hvorki reykir né drekkur áfengi átti í ástarsambandi við John Mayer sem er 12 árum eldi en hún.

Selena Gomez var handtekin en það var út af einhverju hlutverki sem hún tókst á við og Anna Hathaway viðurkenndi að hún hefur gert hluti sem hún er alls ekki stolt af.

Emma Watson hefur verið mynduð í hörkukeleríi við ónefndan mann, Katy Perry ólst upp við strangt uppeldi og segist elska að vera villingur þegar hún er ekki nálægt foreldrum sínum. Anne Hathaway lét hafa eftir sér að hún væri miklu líkari Lindsay Lohan heldur en margan grunar sem segir allt.

Dakota Fanning sagði að hlutverkið sem hún lék í kvikmyndinni The Twilight Saga: New Moon hafi gefið henni mikið því hún lék vonda manneskju - það er eflaust eina prakkarastrikið sem hún hefur upplifað.

Angelina Jolie er óþekk það veit allur heimurinn - ég er og verð alltaf óþekka stelpan - lét hún hafa eftir sér. Svo má nefna Charlize Theron og Jessicu Simpson sem hafa rætt smávægileg skammarstrik opinberlega.

Sjá má leikkonurnar í meðfylgjandi myndaalbúmi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.