Sport

S-Kóresku badmintonkonurnar fá vægari refsingu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Þær fjórar suður-kóresku badmintonkonur sem töpuðu viðureignum sínum viljandi á Ólympíuleikunum í London hafa fengið vægari refsingu en þeim var upphaflega veitt.

Alls voru átta badmintonkonur dæmdar úr leik á leikunum, fjögur pör í tvíliðaleik kvenna, fyrir að reyna að tapa leikjum sínum viljandi í þeim tilgangi að fá auðveldari andstæðing í fjórðungsúrslitum.

Tvö paranna eru frá Suður-Kóreu en hin frá Kína annars vegar og Indónesíu hins vegar.

Suður-Kóresku pörunum var upphaflega refsað með tveggja ára keppnisbanni af badmintonsambandi landsins en það hefur nú verið stytt í sex mánuði. Þjálfarar þeirra verður nú meinuð afskipti af íþróttinni í fjögur ár en þeir voru upphaflega dæmdir í lífstíðarbann.

Ólympíusamband Suður-Kóreu á eftir að taka málið til umfjöllunnar en það þykir hið neyðarlegasta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×