Hrafnhildur þögul um meiðslin: Ég er nokkuð sátt Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 1. ágúst 2012 10:12 Mynd/Valli
Hrafnhildur Lúthersdóttir var ánægð með frammistöðu sína í 200 m bringusundi á Ólympíuleikunum í London í morgun þrátt fyrir að hafa verið um tvær og hálfa sekúndu frá sínu besta. Hrafnhildur synti á 2:29,60 mínútum en Íslandsmet hennar í greininni er 2:27,11. Það var sett skömmu fyrir Ólympíuleikana en alls hefur hún bætt metið sitt í greininni þrívegis á þessu ári. Hún hafnaði í þriðja sæti í sínum riðli og alls í 28. sæti af 34 keppendum. Þess má geta að hún náði fimmta sæti á EM í Ungverjalandi í maí síðastliðnum í sömu grein. „Ég er nefnilega alveg ánægð með þetta miðað við að þetta skuli vera morgunsund og vegna meiðslanna minna. Að komast undir 2:30 var betra en ég bjóst við," sagði hún við Vísi eftir sundið. „Ég er því alveg sátt við þetta."Fann ekki fyrir meiðslunum Hrafnhildur meiddist þegar hún datt og bar fyrir sig olnbogann í Frakklandi á dögunum þegar að sundlandsliðið var þar statt í æfingabúðum. „Ég fann sem betur ekki mikið fyrir meiðslunum. Adrenalínið var á fullu og þá finnur maður ekki jafn mikið fyrir því." „Ég hef fundið fyrir smá óþægindum en ekki það mikið að ég hef ekki getað synt eða æft," segir hún. „Ég hef ekki þurft að taka nein verkjalyf nema íbúfen öðru hvoru. Annars hef ég reynt að nota verkjalyf sem minnst." Hún vill ekki tjá sig nákvæmlega um meiðslin. „Ég ætla að halda því fyrir sjálfa mig. Þetta er þó ekki það alvarlegt og ég er nokkuð sátt við allt saman."Fann fyrir stressi Hún segir það mögulegt að hún hafi ekki útfært sundið nógu vel. „Það getur verið. Ég hefði líka viljað synda 50 metran aðeins hraðar á æfingum í vikunni vegna þess að mér fannst ég hafa misst aðeins þol." „En þetta var samt miklu betra en ég bjóst við. Þetta voru fyrstu Ólympíuleikarnir mínir og ég viðurkenni fúslega að ég fann fyrir stressi fyrir sundið." Hún segir að hún hafi ekki farið oft undir tvær og hálfa mínútu í þessari grein á ferlinum, þó svo að hún hafi gert það þrívegis á þessu ári. „Þetta var því fjórði besti tíminn minn frá upphafi og við það er ég sátt." Hrafnhildur hafnaði í fimmta sæti á Evrópumeistaramótinu á 2:27,92 og var hún þá aðeins hálfri sekúndu frá silfurverðlaunum. 2:27,00 hefðu hins vegar ekki dugað áfram í undanúrslit á leikunum í morgun. Sú síðasta sem komst inn í undanúrslitin í morgun synti á 2:26,94 en það er aðeins 0,17 sekúndum betra en Íslandsmet Hrafnhildar. „Það eru margar sem eru að fara undir 2:26 á þessum leikum og ég hefði þurft að bæta mig um eina eða tvær sekúndur til að komast eitthvað áfram."
Tengdar fréttir Hrafnhildur þriðja í sínum riðli - langt frá sínu besta Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundkona úr SH, var langt frá sínu besta í undanrásum í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í London. Hrafnhildur hefur verið að glíma við meiðsli og það hafði augljóslega áhrif á hana í sundinu í morgun. 1. ágúst 2012 09:58 Mest lesið Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Fleiri fréttir Leik frestað á U.S. Open Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Sjá meira
Hrafnhildur þriðja í sínum riðli - langt frá sínu besta Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundkona úr SH, var langt frá sínu besta í undanrásum í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í London. Hrafnhildur hefur verið að glíma við meiðsli og það hafði augljóslega áhrif á hana í sundinu í morgun. 1. ágúst 2012 09:58