Sport

Ólympíueldurinn logar enn | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Fáir hafa séð Ólympíulogann síðan hann var tendraður á setningarathöfninni á föstudaginn síðastliðinn en hann lifir þó enn góðu lífi á Ólympíuleikvanginum.

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, gekk um leikvanginn í gær en nú er verið að búa hann undir frjálsíþróttakeppnina sem hefst á föstudagsmorgun.

Myndirnar má sjá í möppunni hér fyrir neðan eða með því að smella hér.

Mynd / Valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×