Eygló: Hefði bætt metið í undanúrslitum Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 2. ágúst 2012 11:21 Mynd/Valli
Eygló Ósk Gústafsdóttir var ánægð með niðurstöðuna í 200 m baksundi á Ólympíuleikum í morgun en hún hafnaði þar í 20. sæti og var ekki langt frá því að komast í undanúrslit. „Ég er mjög ánægð. Ég var fjórum sætum frá því að komast áfram í undanúrslit,“ sagði hún. Eygló var þó tæpri sekúndu frá Íslandsmeti sínu í greininni sem hefði dugað til að komast áfram. Hún segir það þó ekki svekkjandi að hafa ekki bætt metið. „Alls ekki. Maður er alltaf aðeins hægari að morgni til vegna þess að maður er nývaknaður. Enda eru heimsmet aldrei slegin að morgni til. Ég er því mjög ánægð með tímann miðað við að þetta er morgunsund.“ „Ef ég væri í undanúrslitum og gæti synt aftur um kvöldið myndi ég segja að þetta Íslandsmet væri fallið. Ég er bara mjög ánægð með að hafa lent í 20. sæti á Ólympíuleikum. Það er mjög gott.“ Laure Manadou frá Frakklandi kom í mark á eftir Eygló og var okkar stúlka ánægð með það. „Hún er mjög sterk sundkona. Það er ekki leiðinlegt að vera með svona stórum nöfnum í riðli,“ sagði hún en meðal þeirra sem hún keppti við í morgun var Missy Franklin, heimsmeistarinn í greininni. Franklin og Eygló eru jafngamlar - báðar fæddar 1995. „Það var var ekkert smá gaman að vera í þessum riðli. Sérstaklega í herberginu sem keppendur eru í fyrir riðilinn - þar var mikið brosað og hlegið. Ég reyndi bara að halda andlitinu og einbeitingunni enda alveg ótrúlega stressuð.“ Franklin virðist hálfgert undur í þessari grein enda varð hún heimsmeistari í fyrra, aðeins sextán ára gömul. „Ég skil hana bara ekki,“ sagði Eygló og hló. „Hún er ótrúleg.“ Hún segist hafa útfært sundið ágætlega. „Ég byrjaði mjög vel og ég hlakka til að sjá millitímana mína. Satt best að segja leið mér samt sem áður eins og ég væri ekki á nógu miklum hraða. Ég hélt að ég væri búin að fara hægar en það er greinilegt að ég var búin að æfa tökin nógu vel - þau voru greinilega sterk og góð.“ Eygló hefur nú keppt í þremur greinum á leikunum en segir að hún hafi aldrei verið stressaðri en fyrir þessa grein. „Ég var titrandi í morgun. En það er gott að geta upplifað svona reynslu. Þetta er skemmtilegasta mót sem ég hef farið á.“ Hún keppir í fjórðu og síðustu grein sinni á morgun þegar boðsundssveit Íslands keppir í 4x100 m fjórsundi.
Tengdar fréttir Eygló Ósk endaði í 20. sæti af alls 37 keppendum Eygló Ósk Gústafsdóttir endaði í 20. sæti af alls 37 keppendum í 200 metra baksundi kvenna á Ólympíuleikunum í London í morgun. Eygló kom í mark á tímanum 2:11,31 mín. en Íslandsmet hennar er 2:10,38 mín sem hún setti á þessu ári. Eygló hefði þurft að synda alveg við Íslandsmet sitt til þess að komast í 16 manna úrslit eða 2:10,60 mín. 2. ágúst 2012 10:56 Mest lesið Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Fótbolti Brentford hafnaði tilboði Manchester United Enski boltinn Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Handbolti Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Íslenski boltinn Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Fótbolti Fleiri fréttir Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Brentford hafnaði tilboði Manchester United Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Dagskráin: Formúla 1, pílukast í Bandaríkjunum og tvö golfmót Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Hetja Blika með þrennu af bekknum: „Allir jafn mikilvægir“ Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits David Beckham lagður inn á sjúkrahús Eva Margrét sjöunda á EM Heldur ekki áfram með Leicester Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Glódís byrjar gegn Serbum á þrjátíu ára afmælisdegi sínum Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Liðsfélagi hjá AGF sannfærði Mikael um að semja við Djurgården Fotios spilar 42 ára með Fjölni „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ „Við erum bara búin að fara í eina átt og það er upp“ „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Sjá meira
Eygló Ósk endaði í 20. sæti af alls 37 keppendum Eygló Ósk Gústafsdóttir endaði í 20. sæti af alls 37 keppendum í 200 metra baksundi kvenna á Ólympíuleikunum í London í morgun. Eygló kom í mark á tímanum 2:11,31 mín. en Íslandsmet hennar er 2:10,38 mín sem hún setti á þessu ári. Eygló hefði þurft að synda alveg við Íslandsmet sitt til þess að komast í 16 manna úrslit eða 2:10,60 mín. 2. ágúst 2012 10:56