Sport

Hrafnhildur fékk köku í Ólympíuþorpinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Á upplýsingatöflu í sundhöllinni í London eru nöfn afmælisbarna dagsins hengd upp. Hrafnhildur er lengst til vinstri í röðinni.
Á upplýsingatöflu í sundhöllinni í London eru nöfn afmælisbarna dagsins hengd upp. Hrafnhildur er lengst til vinstri í röðinni. Mynd/Ingi Þór Ágústsson
Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir fagnar 21 árs afmæli sínu í dag og gerði hún það á viðeigandi máta í Ólympíuþorpinu.

Foreldrar Hafnhildar fengu að koma með köku í þorpið sem vakti vitanlega lukku í íslensku Ólympíusveitinni.

Hrafnhildur er ásamt félögum sínum í boðsundssveit Íslands í 4x100 m fjórsundi að undirbúa sig að kappi fyrir keppni á morgun en það verður í fyrsta sinn sem Ísland á boðsundssveit á Ólympíuleikum.

Hún fékk einnig gjöf frá forystusveit Sundsambandsins sem er stödd hér úti í Lundúnum.

Vísir óskar henni vitanlega til hamingju með daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×