Sport

Bolt tapaði aftur fyrir Blake

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Blake, lengst til hægri og Bolt, lengst til vinstri.
Blake, lengst til hægri og Bolt, lengst til vinstri. Nordic Photos / AFP
Usain Bolt tapaði öðru sinni fyrir landa sínum, Yohan Blake, í spretthlaupi á aðeins örfáum dögum. Nú þurfti hann að játa sig sigraðan í 200 m hlaupi.

Fyrir þremur dögum hafði Blake betur í 100 m hlaupi en báðar greinar voru úrtökumóti Jamaíku fyrir Ólympíuleikana í Lundúnum í sumar.

Blake kom í mark í 200 m hlaupinu í gær á 19,80 sekúndum eða 0,03 sekúndum á undan Bolt sem er heimsmethafi í bæði 100 m og 200 m hlaupi.

Að óbreyttu mætast þeir næst á Ólympíuleikunum sjálfum en Bolt hefur þó ekki áhyggjur af því að Blake muni einnig hafa betur þar. „Ég hef aldrei áhyggjur fyrr en þjálfarinn minn hefur áhyggjur. Og hann hefur engar áhyggjur þannig að þetta er allt í góðu lagi," sagði Bolt í gær.

Þeir Blake og Bolt eiga reyndar sama þjálfarann - Glen Mills. „Usain hefur reynsluna og getuna. Hann hefur gert þetta áður. Hann er kannski aðeins frá sínu besta nú en ég er viss um að hann muni skila sínu allra besta þegar mest á reynir," sagði Mills.

Blake er nú að fara að keppa á sínum fyrstu Ólympíuleikunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×